Auglýsing

Sumarupprifjun um malbikið.

19. nóvember 2009 klukkan 21:17
Hey, manstu eftir mér?
Ég laggðist í dvala og mun kannski fara að gefa mér meiri tíma í að gefa eitthvað af mér aftur í framtíðinni.

Ég var, eins og sumir vissu kannski, að ég var að vinna í malbikinu í sumar. Þar malbikuðum við Hellisheiðina, reglulega á Selfossi og Borgarnesi og annarsstaðar úti á landi, fórum lengst á Hvammstanga, þar sem við gistum yfir nótt og Vík í Mýrdal, en það er nánast alveg jafn langt í burtu, svo að sjálfsögðu malbikuðum við fullt í bænum líka.
Kannski ég byrji fyrstu söguna á Hvammstanga, en þar gistum við í Gauksmýri sem er flottur staður rétt fyrir utan Hvammstanga. Um kvöldið var aðeins fengið sér í glas með vinnufélögunum þrátt fyrir að það var þriðjudagur og vinna daginn eftir.
Aðal sagan er samt var í kringum Bjössa, sem keyrir tjörubílinn. Fyrir mat múnaði hann okkur, en ég leit frá og sögurnar segja að pungurinn hafði slegist í hnéð á honum, strákarnir trúðu ekki sínum eigin augum og þetta var umtalað í allt sumar. Svo eftir matinn var Bjössi að spjalla í símann við konuna og var ágætlega í því og sagði við okkur: "Segið bæ við Pamelu." Við sögðum bæ en það var greinilega ekki nóg því hann byrjaði að kvarta yfir að við gætum ekki kvatt.. en þá segir Elli, á vélinni: "Ég skal segja bæ við hana", hann fékk símann og fretaði ógurlega framan í greyið konuna!
Okay.. þið getið rætt um hvort það sé fyndið eða ekki, en það var mjög fyndið, trúið því bara!!

Hryllingssaga: lesið með slökkt ljós: 11. september gerðum við okkar eigið hryðjuverk hjá malbikunarstöðinni. Við vorum að malbika göngustíga í Melahverfi í Hvalfjarðarsveit. Dagurinn byrjaði þokkalega vel, það var smá kalt ef ég man rétt, en ágætt veður samt og allt gekk sem skyldi þar til Svavar kom! Aaaaaaaarrggggghhhh........
Hann bakkaði í skúffuna á vélinni og sturtaði! Ennþá var allt í góðu lagi, nema skyndilega sá hann reyk og vissi ekki hvað var í gangi og slökkti á bílnum! Karlarnir urðu brjálaðir og sögðu honum að drulla sér í burtu..... en þá kom í ljós að hann hafði keyrt niður Raaafmagnskassaaaaaaaaa............!!!
Horrorsagan búin... en ég verð að viðurkenna að þetta var geðveikt töff sko.. kassinn logaði og það voru miklar spreningar og læti í kassanum, en maður þorði ekkert að koma nálægt honum! Ég held að þetta jafngliti því að vera þarna á áramótunum... nema það var ekki myrkur úti!
Löggan og slökkviliðið kom svo löngu löngu seinna og það var ekkert rafmagn þarna á svæðinu í smá tíma.. en það lagaðist sama dag og er rafmagnskassinn núna kominn hinumegin við göngustíginn en hann átti upphaflega að vera.

Svo vil ég muna eftir Coke flösku sem við malbikuðum yfir á Hellisheiðinni, en svo daginn eftir komum við aftur og fundum hana... ég dró hana uppúr malbikinu og lagaði holuna eftir flöskuna. Þetta var svolítið fyndið dæmi en svolítið had to be there..
Reyndar var það ekki eina Cokeið sem ég fann á götunni á Hellisheiðinni í sumar, því ég fann líka Coke í dós sem var líklega búin að vera þarna í nokkur ár, en það var búið að líma hvíta línu yfir hana og ég tók hana og setti hana inn í bíl

Ég átti einn daginn ekki mjög góðan magalega séð. Við vorum að fara að byrja á verkefni í vesturbænum/granda.. einhverstaðar þar.. ég veit ekki hvort það er, en það er rétt við Nóatún, Hringbraut (þú veist hringtorgið við sjóinn) allavega... mér varð allt í einu mál að gera númer 2 og það virkilega alvarlega!! Ég fór inná Hróa Hött, sem er þarna í sömu byggingu... já og Subway er þarna hliðina á líka!! Ég bað um að komast á klósettið það var ekkert mál. Ég skrapp inn og gerði mitt.. og ég veit ekki hvort að heilsuvernd hafi farið þangað síðan.. en sérstaklega þennan dag hefði átt að loka staðnum... stybban eftir mig var ómetanleg! Maður spyr sig enn í dag hvort það sé hægt að éta þarna eftir mig.

Ég kynntist aðallega Tomma í sumar og einhvernvegin kom ég honum á bragðið um UFC með því að bjóða honum í partý einusinni og Atli var í UFC leiknum. Eftir það hefur UFC verið í kollinum á honum og komið mér í að horfa á bardaga með sér! Við biðum ógurlega lengi eftir Lyoto Machida og Mauricio Shogun Rua bardaganum og misstum svo sannarlega ekki af honum... þó svo sá bardagi var smá vonbrigði, þá heldur þetta áfram um helgina þegar Forrest Griffin og Tito Ortiz slást!!
Ertu memm?

P.s. Einu myndirnar sem ég veit af okkur síðan í sumar eru hér.
Sorglegi parturinn er að ég næ ekki að save-a myndirnar og setja þær inná færsluna.

Djammbik

13. júlí 2009 klukkan 23:34
Eitthvað þarf maður að bjarga andlitinu hérna!

Síðasta mánuðinn hefur maður basicly unnið og partýast. Það var partý hjá Andra fyrir þónokkru, framlag Trausta í partýinu var snilld, það hefði ekki verið eins án hans. Þó kom saman fullt af góðu fólki og allir skemmtu sér vel.
Á sama tíma voru Pavol, Jón, Sigurgeir og fleiri á Graspop í góðu stuði. Maður hefur heyrt að maður missti af miklu í ferðinni. En þá hugsa ég bara næsta ár! Þá er planið að fara þessa ferð og eiga það gott og þú kemur bara með í 10 daga ferðalag eða eitthvað og í dúndrandi stemmara!!... en vonum samt að það verði fleiri snilldar bönd eins og voru 2008 þegar ég var.

Þá var tekið á því hjá Arnaldi um daginn, en ekkert frásagnarlegt að frétta þaðan.. nema að gestgjafanum varð frekar óglatt og eyddi dágóðum tíma með salernisskálinni, en einhverjir sáu um kappann á meðan. Ég og Trausti fórum í bæinn saman, við hittum fullt af fólki en stuðið byrjaði samt ekki almennilega fyrr en Trausti fór og ég tók djammið með Reyni inná Apótekinu, en það var í fyrsta sinn sem ég hafði komið þangað.

Ég fór svo á ættarmót um helgina. Við vorum í Hvalfirði, eitthvað var nú drukkið.. ég var nú ekki búinn að fá mér mikið þegar ég fór að finna svolítið á mér, en hafði lítið borðað.
Svengdin hélt áfram alla helgina, ég borðaði pulsu kl 14 daginn eftir og fór í bæinn vegna afmælisins hans Reynis. Ég byrjaði að drekka áður en ég fór af stað og var orðinn vel ölvaður um 10 leitið þegar ég skrapp á Pizzuna með Atla og Gústa, en svo fórum við aftur til Reynis.
Afmælisbarnið hvarf þegar við fórum í bæinn og enginn hitti hann í bænum svo mikið sem ég veit, en ég hitti flesta aðra. Stemningin byrjaði ekki fyrr en um kl: 4 þegar ég fór á Glaumbar með Gulla og við dönsuðum soldið, en þegar maður tók eftir að það væru eiginlega bara gaurar í kringum okkur ætluðum við að kíkja á Apótekið, en áður en við komumst inn voru Heiðar og Steingerður komin á Glaumbar og við hittum þau þar.
Það var frekar skemmtilegt að rekast á Binna og Möggu þegar við vorum á leiðinni í leigubíl og við deildum taxanum með þeim í Seljahverfið.

Annars í bikinu erum við búnir að malbika 5600 tonn á Hellisheiðinni, þannig þið getið vonandi notið ykkar aðeins betur á leiðinni til Hveragerðis eða Selfossar eða á leiðinni í bæinn. Ég lærði á Hellisheiðinni að þar er mosinn mjög þæginlegur og það er mjög gott að liggja í honum. Það má vel sofa þarna... bara passa að það rigni ekki mikið.
Við malbikuðum í kringum skolphreinsistöð í Hafnarfirði... það var nú ekki ljúffeng lykt inní því húsi.
Við erum búnir að vera nokkuð duglegir í Seljahverfinu, tókum Hólmaselið um daginn... það var ekki fallegt, en það var gert eins vel og hægt var eftir víst smá mistök hjá vélamanni, en það er þó þokkalegt að keyra þar.
Svo höfum við farið nokkrum sinnum á Borgarnes. Þar er Herbert "The Pervert" sá kall er kominn vel á aldur og mætir alltaf með myndavélina og tekur myndir af okkur.
Í dag bikuðum við Sæbraut frá Olís, framhjá Laugarásbíó og að Shell svo fórum við á Akranes og tókum eitthvað leiðinda verkefni, en góða veðrið hélt manni góðum og þó maður kvartaði undan verkinu og rykinu sem var þarna, þá gat þetta verið verra.

Ég nenni ekki að setja inn myndir núna.. Þið verðið bara að googla myndir sjálf og skoða.. ég læt þetta nægja ljúflingarnir mínir, takk fyrir að tékka reglulega þó maður sé slakur í þessu núna.

Núna

17. júní 2009 klukkan 16:13
Hefuru eitthvað pælt í því að augnablikið "núna" er svo stutt að maður fattar Þessi mynd er ekki lengur "núna"
það eiginlega ekkert fyrr en of seint. Það tilheyrir strax fortíðinni.

Glöggir menn sjá að ég hef ekki verið upp á mitt besta í ritum mínum hérna en ég vill alltaf reyna að skrifa um daglega eins og áður var. Þannig ég bið fólk um að gefast ekki strax upp.

Smá update af gjörðum mínum síðustu daga:
Ég fór til Borgarness og malbikaði þar.
  - malbikaði fyrir utan fyrirtækið okkar.
  - fór á ættarmót, en það er eitt af tveimur í sumar.
  - horfði á allt Terminator safnið, nýju myndina fyrst samt.
  - sofnaði reglulega eftir vinnu.
  - sá Hangover og Star Trek og báðar voru þokkalega góðar.
  - bretti herberginu mínu, nú er rúmið komið uppvið gluggan og skrifborðið fyrir framan sjónvarpið, en búast má við frekari breytingum fljótlega.

Af Graspop 2008Á morgun Jón, Sigurgeir, Kalli og fleiri að fara til Amsterdam og svo til Belgíu á Graspop, tónleikahátíðina sem við strákarnir fórum á síðasta sumar, Pavol fer líka, en mætir ekki fyrr en daginn áður en strákarnir leggja af stað til Dessel, Belgíu. Ekki er mjög mikið um mega hljómsveitir að mínu mati, nema ég væri aðallega til í að sjá Dream Theater, svo væri varla leiðinlegt að sjá Dragonforce, eða sjá Korn aftur.. það er svona basicly it for me ef ég hefði átt peninga til að skjótast með þeim. En maður horfir kannski til næsta árs.

Annars hef ég aðeins dundað mér við það á Facebook að laga myndaalbúmin frá ferðinni og bætt við myndum. Ég fer að verða búinn að laga albúmin frá minni vél, en þá eru myndirnar frá Pavol og Jóni ennþá eftir.

Nú er kominn 17. júní og spurning um að kíkja í bæinn og svona í dag eða í kvöld. Annars er vinna í fyrramálið.. þannig maður verður varla langt frameftir.

Byrjaður í vinnuni

03. júní 2009 klukkan 00:36
BorgarbyggðÉg er byrjaður í bikinu. Ég byrjaði í síðustu viku. Það var nú ekki mikið gert alla vikuna, nema aðallega á þriðjudeginum. Þá fórum við til Borgarness. Dagurinn byrjaði vel, fínt veður og fínt verkefni. Eftir því sem leið á daginn urðu verkefnin leiðinlegri og veðrið breyttist með og enduðum við daginn í hellirigningu og frekar mikill mokstur með ískalt malbik, alger draumur.
Dagurinn eftir var rólegri og við bónuðum bara malbikunarvélarnar, ein var geymd til fimmtudagsins og ég var sérstaklega spurður (og allir aðrir starfsmenn í minni deild) hvort ég vildi vera í fríi á föstudeginum, en ég vildi frekar mæta heldur en ekki og við mættum fjórir úr framkvæmdardeildinni og ég málaði yfir ryðbletti á fræsaranum okkar.
Mega stuð.
Í dag fékk ég einstakt verkefni. Ég og Birgir fengum að príla undir vigtina (sem vigtar vörubílana) og við fengum að moka drullu og ógeð sem hafði safnast þarna saman síðustu fjögur árin. Göngin voru líklega um 150 cm há, allavega alls ekki hærri en það, þannig það var erfitt að moka í þrjá tíma stanslaust í ljósalitlu umhverfi sem reyndi virkilega mikið á bakið. Án efa ógeðslegasta sem ég hef gert í bikinu. Við náðum að skemma þrjár fötur sem drullan var sett í og hellt í gröfu og svo flutt annað.
Á morgun verður svo mjög líklega aftur farið á Borgarnes. Þá vonar maður bara að sjálfsögðu að rigningin sleppir því að koma.

Helgin var þokkaleg. Ég var í nördasamkonu hjá Binna á föstudagskvöldinu og fór svo með Gústa til mín, en Atli var frekar fullur einn í PS3, en hann
Ein af blokkum hverfisinshafði drukkið síðan um hádegi, svo kíktu Kristjana og Sigrún í heimsókn.
Ég eyddi svo kvöldinu með þeim líka á laugardeginum þegar við skruppum til Eyþórs vinar Kristjönu í Bandaríkjunum, Íslandi. (Blokkirnar sem bandarísku hermennirnir bjuggu í þegar þeir voru hér). Þetta var án efa skemmtilegasta partý sem ég hef farið í í Reykjanesbæ.
Gella með uppistand í Newcastle treyju
Newcastle féll í síðustu umferð deildarinnar. Þeir voru virkilega máttlausir í fallbaráttunni, en þónokkrir góðir leikmenn segjast ætla að halda áfram hjá liðinu og komast aftur upp að ári. Meðal þessara leikmanna eru Duff, Steven Taylor og Beye. Svo mun líklega Carrrol fá fleiri tækifæri í Coca-Cola deildinni, eins og Edgar og kannski Nile Ranger - eða Ranger Danger eins og hann hefur verið kallaður, en hann hefur verið að gera það rosa gott með U19 landsliði Englands síðustu daga.

Svo vil ég þakka öllum þeim áhugasömustu sem kíkja ca. daglega, sem eru eitthvað um 5-9 manns, gott að vita af fólki sem vill lesa, þó það sé ekki mikið að gerast þessa dagana, en ég vona, ekki síður en aðrir að þetta lagist sem fyrst bara.

3

22. maí 2009 klukkan 01:47
Elskurnar mínar.
Ég verð að segja ykkur sögu.

Það er nú ekki mikið frásagnarkennt frá mér.
Ég heng oft uppí Unufelli þessa dagana.
Ég sef mikið frameftir.
Ég hef tvisvar farið í sund í mánuðinum.
Ég er búinn að taka tuðruspark tvisvar í þessari viku og einusinni í almennilegan fótbolta.

FótboltiÉg hitti Gunna Viðar og við fórum í fótbolta í Austubæjarskóla, þar voru strákar á okkar aldri og upp í miðaldra menn og Valdi var meðal mannana. Valdi úr Geisladiskabúð Valda. Maður er ekkert búinn að vera í æfingu sl. ár, þannig þegar maður var búinn að hlaupa í eina mínútu var maður búinn og reyndi að safna meiri kraft, og eyddi honum strax og þannig gekk þetta allan tíman og ég var gjörsamlega búinn eftir kvöldið. Daginn eftir (í gær) var ég líklega bara með mestu harðsperrur sem ég hef nokkrun tíman haft en reyndi að harka það af mér og skrapp samt í smá bolta með Jóni, Pavol, Svenna og Kristjönu. Í nótt átti ég mjög erfitt með að bylta mér í rúminu og sérstaklega fyrri part dagsins átti ég í miklum vandræðum með að standa upp úr stól og meira að segja var þokkalega erfitt að setjast bara.

Heima hefur verið mikið í gangi. Hulda er flutt niður í bílskúr, Atli er flutur tímabundið inn í Huldu herbergi og hann er þá eini heima sem hefur átt mitt herbergi (með mér þegar við vorum pjattar) sitt eigið herbergi öll hin árin og nú tímabundið er Huldu herbergi herbergið hans og Sólrúnar. Ég, Hulda og mamma og pabbi höfum alltaf átt bara okkar herbergi síðan 1992, þegar við fluttum inn.
Ég og Atli (líklega aðalega Atli) munum svo breyta Huldu herbergi svo í leikherbergi, þar sem flestar tölvurnar fara þar inn, svo fer trommusettið hans Atla þangað líka og við erum að pæla að finna okkur sófasett til að setja þarna inn.
En nú mun Atli mála sitt herbergi og einhver læti áður en hann flytur aftur til sín.
Það er samt allt stopp í framkvæmdum því Hulda er að útskrifast úr Verslunarskólanum og verður eitthvað samkvæmi heima á laugardaginn.
Talandi um það, þá var Sólrún að útskrifast úr Fjölbrautaskólanum við Ármúla, besta skólanum auðvitað, í dag og fórum við fjölskyldan til hennar í veislu áðan. Veislan heppnaðist þokkalega vel og frábær matur.. allavega var ég að dýrka kjúklingaréttinn með nachosinu... og ég sem er ekkert voða mikið fyrir nachos.
3Ég vil bara óska Huldu og Sólrúnu til hamingju með áfangann, það er gott að klára stúdentinn.

Ég er þá að fara að byrja í malbikinu næsta mánudag... þokkalega tilhlökkun komin í mann að komast í eitthvað reglulegt líf loksins.. It's been a long time Smile

Í lokin vil ég svo þakka fyrir lesturinn síðastliðin 3 árin, þessi síða varð þriggja ára gömul í gær, 21. maí og mun hún vonandi lifa næstu þrjú árin... allavega er ég ekki hættur að skrifa þrátt fyrir mega bloggleysi eitthvað uppá síðkastið.

Eyrnabólga

31. mars 2009 klukkan 17:48
Þetta er officially slakasti bloggmánuður í mjög langan tíma.

Í mars mánuði er aðallega það að frétt að ég varð veikur.

EyraÞað er rétt.. ég verð aldrei veikur.

Eina nóttina var ég að fara að sofa... hafði rétt áður smá kvartað yfir eyrnaverk, en laggðist svo ég koddann og vakti. Ég var fáranlega veikur, en ég gat ekki sofið því ég fann fyrir bólgu vaxa og vaxa í eyranu og það var svo vont að ég myndi ekki vilja endurtaka það.
Ég bylti mér alla nóttina og well.. ég var bara að deyja.

Hádegið eftir skrapp ég til læknis. Hann var með það í tölvunni hjá sér að ég hafði ekki fengið eyrnabólgu síðan 1991.
Svo hafa mamma og pabbi sagt mér að þegar ég var með eyrnabólgu þegar ég var lítill kvartaði ég ekkert. Mamma sagði mér so sögu  þegar hún fór með Atla og Huldu til heimilislæknis því þau voru bæði veik og svo kíkti læknirinn á mig bara af því... það kostaði heldur ekkert meira hvort eð er.. þá var ég eini sem þurfti að fá lyf fyrir eyrnabólgu og var lang veikastur af öllum, bara var ekkert að kvarta.

Eyrnabólgan er svo ekkert eina sem var að.. ég er líka með einhverja langvarandi hellu í vinstra eyranu, svo er ég með nefofnæmi sem ég veit ekkert hvað er, ég var allavega líka ennþá með hálsbólgu sem ég fann ekkert fyrir þegar ég var hjá lækninum og hann sagði að ég væri með stóra hálskyrtla.. en ég þarf víst að kíkja aftur til hans í næsta mánuði og kannski þarf að lækna mig meira.

Lyfin mín - AmoxicillinAllavega núna síðustu daga hef ég verið að taka inn eitthvað lyf í flottum töflum, eyrnadropar og nefsprey. Nefspreyið er agalegt, með einhverju metntol dæmi og það svíður bara í nefið... svo var ég að sjá það í dag að þetta er bara venjulegt nefsprey.... ekki sama og ég tók þegar ég var með stíflað nef.
Svo er manni ekkert illt í eyranu nema örlítið stundum, en ég hef ekkert haft nema kannski 40-60% heyrn á hægra eyranu í 4-5 daga.

Ég fór til Gumma í gær með Sigrúnu og við ætluðum að taka strætó heim, en báðir strætóarnir voru nýfarnir. Atli kom að sækja okkur, en eftir að hafa labbað aðeins í kuldanum og ég var nú ekkert úti meira en 20 min.. en ég var eitthvað asnalegur í gærkvöldi til kannski um 10 eða eitthvað.. svo reyndar hefur maður ekki verið nema svona 80% jafn góður og ég var í gær.. ég er alveg þokkalegur, ég lít nú ekki út fyrir að vera neitt slappur eða neitt.. en vá hvað þarf lítið til að koma heilsunni minni úr jafnvægi núna.

EyraVoðalega er maður orðinn þreyttur á að vera svona veikur. Það er ekkert skrýtið að ég hef ekkert nennt því síðastliðin ár!
Ég ætla svo eftir þetta að halda áfram að vera ekkert veikur. Það er alveg nóg einusinni á áratug..... í mestalagi... þó það sé meira að segja of mikið.
Þá tek ég - að vera heima einn dag til að slappa að og svona til að verða ekkert slappari - ekki með því ég flokka það ekki undir að vera veikur. Kvef er ekki veikindi og ekki hálsbólga heldur... ekki í minni orðabók.

Við skulum bara láta mér batna svo ég þurfi ekki að vera fangi hjá þessarri eyrnabólgu, ég vil fara að komast út, fá fríska loftið og hlaupa á eftir bolta og fá smá útrás.

Lifum heil, rífum ekki hendurnar af okkur.

Old times

16. mars 2009 klukkan 17:13
Bululululu.

Já, alveg rétt. Ég hef verið að skoða gamlar færslur.

Ég vil deila góðum tímum með ykkur.

Komdu með til fortíðar með mér og skoðaðu legend færslur sem hafa týnst í þokunni.

Ég fann fyrir langa löngu færslu sem ég stal af annari bloggsíðu. Ég lét ykkur nú ekki lesa strætóferð hjá einhverjum ókunni mannesku, heldur höfðu "númer tvö" athafnir verið hefið nöfn.
Kúkabrandarar

Eitt gleymt legend atriðið hjá okkur Arnaldi... Arnaldur, þú manst þetta pottþétt þegar þú sérð þetta:
Pepsi getur aldrei verið Coke, Yaris getur aldrei orðið jeppi og hnakkar geta aldrei orðið Ekki hommar!

Ég samdi nokkra rapptexta:
Yo Yo.. ég er Mr. Skeggi, kóngurinn í rappheiminum og bið ykkur um að vorkenna mér, því ég er svo mikið fífl, ég get ekki einusinni samið skemmtilegt blogg, þannig ég bið heiminn um að sameinast og vorkenna mér og gefa mér pening svo ég geti keypt mér bling bling og ching ching og dansað með fallegu stelpunum í myndböndunum mínum.

Næsta lag: Yo, takk fyrir mig, ég elska ykkur aðdáendur, ég sem svo frábæra tónlist við stórkostlegan takt, ég dansa í dag við flottu píurnar í myndböndunum mínum og leyfi ykkur að horfa á það, því það er svo gaman að sjá aðra dansa við gellurnar!

Næsta lag: Yo-Yo Aha-Yeah! Nú hef ég ekkert að væla um, ég er búinn að tjá mig um allt sem ég þarf að segja, annaðhvort get ég búið til lög með mjög innihaldslausa texta eða ég get fundið mér ný efni til að væla yfir, eins og kannski fá mér kellingu og vera góður við hana og semja texta um hve mikið ég elska hana og dái og loksins þegar hún dömpar mér þá sem ég annan texta til að fá ykkur til að vorkenna mér og gef út plötu í tilefni þess að ástin í lífinu dömpaði mér. Aha Aha-Yo Vorkennið mér!

Heyrðu, ekki má gleyma legend augnablki, sem hafði dottið eitthvað út. Ég fann þetta bara í gær og skildi ekki afhverju í fjandanum þetta væri ekki í Gullkornunum. En nú er þetta komið þangað enda ómetanleg lífsleynsla.
Bara á rúntum með Jóni!

Svo bara til að minnast Lamba aðeins skulum við rifja upp hvernig hann varð til.
Hryllingssaga!

Annars bendi ég á undirsíðurnar hérna einhversstaðar ofarlega á síðunni til vinstri, þar sem Gullkornin eru að fleira ef þú vilt rifja meira upp.

Jæja.. svona er það að nenna ekki að blogga... Þangað til næst, sem verður vonandi fyrr en seinna!
Borðum pappír.

Söknuður

08. mars 2009 klukkan 22:54
Ég er viss um að fólk sé byrjað að sakna manns.

Ég ætla nú ekkert að segja að ég hafi verið of upptekinn við lífið til að láta vita af mér.

En umSigrún og ég helgina var bara haft gaman. Ég fékk nokkra í heimsókn á föstudaginn, en Sigrún og Andri mættu í heimsókn. Þó ég hafði talað við nokkra um að mæta og fá sér í tánna, þá voru flest allir eitthvað uppteknir, þangað til í kláraði inneignina..
Við Andri deildum Tekílaflösku og vorum á nokkru flippi, samt engu síðra flippi en Sigrún og við dönsuðum og skemmtum okkur mjög vel fyrir miðnætti.
Malena, vinkona Sigrúnar mætti um 11 og svo komu mamma og pabbi heim fljótlega eftir það.
Kristjana kom eftir miðnætti þegar hún var búin að vinna og svo Dísa vinkona
hennar og kærastinn.
En leiðin lá svo í bæinn, en Andra leið ekkert vel þegar við vorum komin hálfa leiðina í bæinn og hann fór heim.

Við fórum á Dillon og hittum einhverja gæja þar, svo á Prikið.
Þegar við við höfðum verið þar nógu lengi hittum við Jón á laugarveginum. Hann hafði verið á Sódóma Reykjavík og eitthvað og var þokkalega góður á því með þjálfaranum sínum. Við eltum þá á Bar 11, þar sem ég hitti Jón úr malbikinu. Við töluðum aðeins um hve mikil snilld væri að vera saman í bikinu í sumar og í hita spjallsins skallaði hann mig í nefið. Það var mjög fyndið eitthvað, en óþæginlegt.

Æji, svo lá leiðin eiginlega bara heim, enda var búið að djamma fullt.

Arnaldur, Andri & GummiÁ laugardeginum var meiri stemmari fyrri hlusta kvöldsins!!
Ég, Pavol og Gummi héldum leið okkar til Sigrúnar. Það voru aðeins þrjár stelpur mættar þegar við komum, en seinna mættu Andri og Arnaldur, Kristjana og ein stelpa í viðbót... ef ég man rétt.
Maður kom að sjálfsögðu með góða stemmarann og til eru nokkrar góðar myndir út teitinu á Facebook. Pavol tók mig meira að segja upp þegar ég var að dansa eitthvað.

Aftur lá leiðin hjá mér niður í bæ. Ég og GummiÉg fór með Gumma og Kristjönu og við fórum á ágætis pöbbarölt. Við komum við á Sódóma Reykjavík, sem virðist góður staður, enda spiluð rokktónlist þar og svona, við kíktum á Bar 11, hittum á Svenna og Höllu á Rosenberg, sem að mínu mati var alltof mikil kaffihúsastemning þegar ég kom þagað, svo fórum við á Celtic Cross og rétt litum inn á nokkra aðra. Toppurinn í bænum var líklega rétt áður en við fórum heim: á Bar 11 (þó það var heimskulega troðið þarna inni) var spilað Weezer, Muse og nokkrar aðrar mjög góðar hljómsveitir í röð.

P.s. myndirnar eru allar úr partýinu hennar Sigrúnar.

Annars er mjög rólegt eitthvað og ný vika framundan.

Ég ætla að óska Vöku til hamingju með sigurinn á bloggkeppninni okkar. Ég var bara ekki næginlega duglegur í síðasta mánuði, með 9 færslur, en Vaka skrifaði einni fleiri.
Þá er um að gera að taka sig til og rykkja sér af stað aftur.

Þangað til næst elskurnar. Ciao!

Pulsubrauð

25. febrúar 2009 klukkan 18:36
Góða kvöldið.

Sumir eru greinilega að sakna manns hérna. Það er á hverjum degi sem einhver rekur nefið inn með von um nýja færslu og nú er loksins ný færsla að veruleika. Aðeins viku bið síðan síðast.

Hvað um það.

Veistu afhverju plebbinn fór til dýralæknis?
Því hann vildi ekki vera svo dýr!

Vá! Var þetta slakasti brandari ever eða? Laughing

PulsubrauðHeyrðu.. Ég skrapp til Sigrúnar síðustu helgi. Það var pulsubrauðspartý. Ég og Gummi mættum, svo voru Kristjana og aðrar vinkonur Sigrúnar þarna. Aðallega var spjallað og hlustað á tónlist þar til sumar stelpurnar fóru í bæinn. Við, fólkið sem ég þekki best beilaði samt á bænum.
Þegar ég kom heim voru Binni og Gulli í heimsókn hjá Atla, þannig það var smá stemmari áður en maður fór í háttinn.

Andri bauð mér, Pavol og horninu í pizzukvöld hjá sér. Þó Pepsi hafi verið á boðstólnum var pizzan frábær sem pabbi hans bakaði.
Við tókum svo pool og svona og kíktum til Arnalds þegar hann var búinn að vinna.
Satt að segja var ég virkilega daufur þetta kvöld og fór í mun fyrra lagi heim. Held ég var mættur heim um eitt.

NUFC-EFCSamt á sunnudeginum var ég virkilega ánægður að sjá Newcastle spila góðan fótbolta. Það var eiginlega ekki hægt að horfa bara á fyrri hálfleik hjá Newcastle, því Liverpool voru að spila gegn Man City á sama tíma, en sá leikur byrjaði klukkutíma fyrir Newcastle leikinn. Þannig þegar fyrri hálfleikur hjá Newcastle var, var Liverpool að spila í seinni hálfleik. Það var svo mikið að gerast í báðum leikjum þannig maður varð að vera á fjarstýringunni á svissa yfir mjög reglulega. Bæði mörkin í Liverpool og City komu í seinni hálfleik, en leikurinn fór 1-1.
En markalaust var í leik Newcastle og Everton. Þó voru alveg hellingur af góðum færum
Mikael Arteta. Newcastle bjargaði a.m.k. 2x á línu, Lovenkrands (NUFC) fékk besta færi leiksins, en skaut framhjá. Mikael Arteta (Everton) steig illa í fótinn eftir að hafa stokkið upp og Kevin Nolan (NUFC) fékk rautt eftir tveggja fóta tæklingu á Victor Anichibe (Everton), sem var stálheppinn að meiðast ekki alvarlega... og viðbótartíminn í fyrri hálfleik var 7 mínútur. Það var mjög fátt sem gerðist í seinni hálfleik, nema Everton voru mjög mikið í sókn, en sköpuðu engin mjög alvarleg færi.

HerbalifeÉg hef hitt ömmu Sessu mjög reglulega síðustu daga. Ég sótti tölvuna hennar í viðgerð og eitthvað, svo í miðju spjalli kom upp umræða um Herbalife og það er einmitt einhver sem er í átaki sem var að leita að einhverju svona og um að gera að minnsta kosti tékka á þessu.
Svo eru fríir tímar hjá ráðgjöfum og læti.. hljómar ekkert illa.

Þú mátt alveg slá á þráðinn eða eitthvað ef þér finnst þú þurfa að tékka á þessu.
Marijuana
Annars... er Herbalife merkið ekki soldið líkt einhverju öðru?
Kannski er það bara ég...

Ég hitti Önnu Herdísi í hádeginu í skólanum í gær. Ætlaði að reyna að kaupa bók, sem ég hélt að ætti að koma út á mánudaginn en hún var ekki komin út.
Arnaldur
Þannig ég tók aðra ferð í dag í Bókasölu stúdenta. bókin var ekki komin, og ég á að skila verkefni í næstu viku... og bókin á að hjálpa mér við verkefnið.... en nú rétt áðan sá ég póst um að verkefninu var frestað og að bókin ætti að vera komin í bókabúðina um hádegið.... en ég var þarna milli 11-11:30.

En ég kíkti svo á Arnald í FÁ í hádeginu. Hann var að spila í löngu frímínútunum.
Nei ekki á spil, á gítar... smá munur.
En eins og maður segir: Alltaf gott að koma í Ármúlann... mjög mikið af góðu fólki þarna.

Well.. annars.. ekkert búast við næstu færslu samt í næstu viku.
Ciao.

Á strætóstoppistöð

18. febrúar 2009 klukkan 19:58
Djöfull finnst mér ég fara að verða slappur í þessu bloggi!

Mér finnst ég hafa ekkert að segja lengur.

Ekki það að ég hef verið að segja eitthvað áður fyrr.

Ég verð að segja ykkur söguna þegar ég var að bíða eftir strætó eftir skóla.

Ég var búinn í tíma og tók upp Mad Pod (iPodinn minn) og ég leyfði honum að raula fyrir mig nokkur lög á leiðinni heim. Ég setti Stereophonics á og rölti í strætóskýlið.

End of story!!

Ömurleg saga?? Jæja.. ég skal krydda aðeins upp á hana.. og ég skal ekki vera að ýkja neitt.

Ásinn kom og stoppaði, hann var svoleiðis troðinn að fólkið komst ekki inn í strætó! Bílstjórinn opnaði bara hurðina í miðjunni á strætónum svo að fólkið kæmist inn.

Strætó númer 14 kom svo næst og ekkert athugavert gerðist. - Ég veit.. hverskonar strætó er þetta eiginlega??

Gummi fór með sexunniJæja þá kom sexan!! Strætóinn stoppaði og fólkið fór inní strætóinn. Heyrðu sá ég ekki glitta í ofurfallegan skokkara sem þurfti að ná þessum strætó. Þegar ég leit betur, þá var þetta enginn annar en ofurhönkið hann Gummi!! Ég rétti fram lófann þegar hann nálgaðist og gaf honum þennan undursamlega five!

Gummi stökk svo upp í strætó og hélt áfram för sinni heim.

Ég þurfti reyndar ekki að bíða mikið lengur en tvær mín eftir gamla þristinum sem tók mig heim.
Okay.. ekki upp að dyrum.. ég þurfti að rölta upp götuna.

Töff krád maður!

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Dingaling

Prófíll

  • Nafn: Skeggi
  • Netfang: skeggi9@hotmail.com
  • Staður: Rvk
  • Atvinna: Háskólanemi hjá Háskóla Íslands
  • Hjúskaparstaða: Einstæður
  • Um mig: Enginn en óflippaður Skeggi
  • Annað: Ef það er ekki gaman, þá gerir maður það gaman

Leit

Leikir á netinu