Könnun: skeggi.bloggar.is er
14. júlí 2009 klukkan 23:59
Alltaf leiðinlegt (1/7) 14%
Hlakka alltaf til að lesa meira (2/7) 29%
Er í smá dvala núna (1/7) 14%
Sinnepsósa (3/7) 43%Einn er alveg kominn með leið og afhverju ætti maður að tékka inn ef maður er kominn með leið á síðunni?
Þá eru tveir sem sleppa ekki refresh takkanum á síðunni og bíða aðeins of spenntir við tölvuna... engin furða að síðan sé stundum hægvirk.
43% borða venjulega við lesturinn og halda ekki sósunni uppí Hlöllanum og sulla öllu yfir sig.
Könnun: Sumariđ verđur
18. júní 2009 klukkan 01:23
Gott veður (5/12) 42%
Peningalítið (3/12) 25%
Bara eins og öll hin sumrin (2/12) 17%
Útlönd, here I come (2/12) 17%
Þessi könnun sker sig svolítið úr öðrum könnunum. Þátttakendur voru ekki of mikið á sama máli, ég meina að dreifingin sé þokkalega góð.Yfir fjörtíu prósenta aðspurða voru vissir að það yrði gott veður í sumar, og ég segi nú að það sem af er sumri get ég ekki kvartað mikið. Fjórðungur er væntanlega ekki í vinnu eða bara mjög láglaunaðari og búast ekki við neinum fjárhæðum í sumar og spila greinilega ekki í lottó. Undir 20% efast um að nokkrar breytingar verði á sumrinu frá þeim undanförnum og það mun ekki standa neitt uppúr, en þá eru alveg tveir ríkir og ætla sér að komast í útlandið.
Hjá sjálfum mér er það þannig að ég sætti mig þokkalega vel við veðrið, en framan af verð ég peningalítill og við skulum sjá til um mánaðarmótin hvort ég muni eiga einhverja aura á næstunni, annars er þetta sumar ekki ólíkt undanförnum sumrum þegar við tökum síðasta sumar frá, en ég er í malbikinu og er að vinna með sama fólkinu, þó það séu tveir sem ég hef ekki unnið áður með og vantar jú nokkra sem ég hef yfirleitt unnið með og ég mun ekki fara erlendis í sumar og væntanlega ekki í haust og mun ég þá bara sjá til á næsta ári.
Könnun: Sturta vs. bađ
04. maí 2009 klukkan 18:30
Sturta (6/12) 50%
Bað (2/12) 17%
Sturta niður (4/12) 33%Nú er tími til að verða duglegur aftur.
Könnunin sem hefur staðið uppi allt fríið mitt er tilbúin til þess að koma í ljós.Fólki finnst greinilega best að vera í sturtu og taka stuttan tíma til að þrýfa sig, svo það getur fundið eitthvað annað við tímann sinn að gera.
Ekki einusinni einn af fimm finnst gott að slaka á og taka lífinu rólega í baði; láta hugann reika og hugsanlega sofna og eiga í hættu á að drukna.
Ég er ekki alveg viss hve lítið fólkið er sem les síðuna, en þriðji hver maður baðar sig í klósettinu og sturtar niður klósettinu til að fá aðeins vatn yfir sig.
Könnun: Coca-Cola vs. Pepsi
10. mars 2009 klukkan 18:12
Coca Cola (18/20) 90%
Pepsi (1/20) 5%
Alveg sama (0/20) 0%
Annað (1/20) 5%
Könnunin var í þetta sinn ekki mjög jöfn, enda hugsanlega ekki mjög sanngjörn, enda vita allir að Coke sé best.90% aðspurða svöruðu Coca-Cola, en aðeins 5% voru á því að Pepsi væri betra en Coke.
Það er nú alveg sanngjarnt að einn af hverjum tuttuga séu með gallað braðskyn.
Það er engum alveg sama, sem þýðir það auðvitað að það er bragðmunur á Coke og Pepsi, en ég hef heyrt einstaklinga segja það að þetta bragðist eins, en hér höfum við niðurstöðuna að svo er ekki.
Einhver einn aðili sagði "Annað" og líklega verið að meina vatn eða eitthvað, en það eru auðvitað fólk til sem drekkur lítið sem ekkert gos, þannig við skulum sleppa þeim aðila þannig.

Þetta þýðir aðeins það að ef Coke færi í framboð myndu íslendingar kjósa Coca-Cola með hreina samvisku án þess að hafa nokkrar áhyggjur af því að Coke myndi gera nokkur mistök.
Könnun: Mest Sexy
07. febrúar 2009 klukkan 18:15
Eyrnamergur (1/13) 8%
Tánögl (4/13) 31%
Rasshár (1/13) 8%
Magasýrur (7/13) 54%Ég svaraði þessari könnun sjálfur, ég á það til að gera það stundum. Ekki var neinn sem er sammála mér í því að eyrnamergurinn sé virkilega erótískur hlutur líkamans. Rasshárin fá einnig aðeins eitt atkvæði sem segir sitt um hversu sérstakir einstaklingar við rasshári erum.
Táneglurnar virðast víst vera þokkalega kynþokkafullar og ég mun þá líklega ekki vera mikið fyrir auga kvennana þegar ég hef klippt táneglurnar í kvöld.
En það fer ekki á milli mála afhverju ég er single náungi. Fólki finnst greinilega mjög spennandi að sjá ælandi fólk. Ég ældi jú tvö kvöld á síðasta ári eftir nokkura ára gubbfríu tímabili.
Ælan kveikir greinilega í fólkinu sem sést mjög vel í þessari könnun, yfir helmingur aðspurðra finnst magasýrurnar heillandi.
Ég þori nú ekki að svara hvað sé svo heillandi við æluna, hvort það sé lyktin eða hvað, en ég svaraði ekki magasýrur, þannig ég er ekki bestur í að svara hvað fólk sér við magasýrurnar.
Könnun: Áriđ 2009 verđur
20. janúar 2009 klukkan 00:05
Kreppa og leiðindi (2/13) 15%
Bara eins og hvert annað ár (4/13) 31%
LEGEGN... wait for it.. DARY. Legendary! (7/13) 54%Yfir helmingur aðspurðra eru bjartsýnir á árið og eina stefnan er að eiga gaman. En, þó er fólk sem býst við sömu gömlu árstuggunni, vinna, borða, sofa, smá stuð inn á milli. En ég býst við að annar þeirra sem sér aðeins fram á kreppuástand og mykra tíma, hafi einnig kosið að svartholið væri að myndast... talandi um fólk sem er að fara að opna únliðina sína.
Jæja, verum bjartsýn á nýja árinu og sýnum brosið... takið mig til fyrirmyndar hehe.
Könnun: Jólagjöfin í ár
06. janúar 2009 klukkan 21:55
Ást og umhyggja (9/12) 75%
Pakki (2/12) 17%
Peningur/Gjafakort (0/12) 0%
Engin jól (0/12) 0%
Kreppudjús (1/12) 8%Könnunin kom á óvart í þetta sinn.. aðeins einn hélt að þetta yrði kreppuhátíð. Enginn átti von á pening eða gjafakorti.. ég fékk þó eitt stykki. Enginn afneitaði jólunum og aðeins tveir biðu eftir pökkunum.
Alveg 75% fólks sem svaraði könnuninni svöruðu að ástin og umhyggjan væri jólagjöfin í ár. Það er frábært að eiga góða stund með fjölskyldunni, en gerir maður það ekki reglulega í gegnum allt árið? Á fólkið í kringum mann ekki smá glaðning skilinn eftir að hafa nennt að umgangast mann allt árið? Voða eru allir eitthvað ástfangnir yfir jólin.. ekkert skrýtið að þeir sem eiga við vandamál að stríða yfir jólatímann séu líklegri til að fremja sjálfsvíg.
Könnun: Jól eđa áramót
17. desember 2008 klukkan 02:35
Fyrir jól (0/13) 0%
Jólin! (9/13) 69%
Á milli jóla og nýárs (1/13) 8%
Áramót! (3/13) 23%Hvað er að fólki? Þessi niðurstaða er til skammar!
Engum hlakka til jólastressins (eða hvernig sem það er sagt) enginn fýlar það að kaupa fullt af drasli til að gefa einhverjum öðrum það. Með stressinu kemur hússkreyting, margir skreyta inni og úti og líklega inni í veggjunum sínum líka svo að flugurnar sem eru í dvala vita að nú er um helmingur dvalatímans liðinn og skordýrin geta fagnað að fyrsti dvala hlutinn er búinn og seinni hlutinn verður væntanlega styttri.. en jú... eins og t.d. húsflugur lifa ekki nema í um mánuð.. þannig að það eru ekki svo margar kynslóðir þangar til þær fá að skemmta sér í að pirra fólk aftur.Nú spyrðu hvort ég sé að tala um jólin eða flugur.. og ég skal segja þér eitt.... ég hef eki hugmynd um það sjálfur. Við skulum halda áfram og sjá hvert þetta leiðir okkur.
Allir þeir enginn hlakka mjög mikið til að vinna fyrir áramótin og leyfa hverri mínutu að lengjast og njóta sín áður en þeir fá að sökkva tönnunum í safaríka og ljúffenga jólasteik og skófla meðlætinu í sig og sulla sósu á sparifötin.
9 manns, eða 69% aðspurða geta ekki beðið eftir að eyða góðri stund með fjölskyldunni, drekka jólaöl, borða frábæran mat, hugsanlega kveikja í húsinu og opna svo jólagjafirnar með æðiskast í augunum og vera reiður vonsvikinn því maður gaf öllum hinum svo mikið flottari gjafir. Svo er auðvitað yndislegt að engar matvöruverslanir eru opnar... en það gerist næstum sjaldnar en sólmyrkvi.Það er hvorki meira né minna en EINN manns sem getur ekki sofið þar til tímabilið milli jóla og nýárs byrjar. Sá er reyndar heppinn í ár, því það er helgi. En ekkert merkilegra... það er helgi í hverri einustu viku... en þessa helgina verður hægt að djamma mörg kvöld í röð!
3, þar á meðal ég, hlakka mikið til áramótana. Ég mun þó ekki eyða peningunum í sprengjur... ef Flamethrower væri selt í Hjálparsveit skáta.. þá myndi ég hugsanlega smala nokkrum tíköllum saman og skella mér á eitt stykki... ég meina í ár hef ég ekkert hár til að láta sviðna af mér. En við þrír (þrjú) munum þó hlakka til að hjá hund nágrannans skjótast upp með einni bombunni og taka þátt í fjörinu. Við munum sjá logandi himinn og halda uppi landsstemningu því okkur hlakkaði meira til þessa kvölds, við ætlum að vaka þar til sólin rís aftur... fyrir utan það að sólin mun rísa þegar við vöknum.. um ca 2 á nýársdag eða eitthvað. Við viljum sjá rakettur springa inní fólki og eiga rauð áramót og heyra í fréttunum á nýju ári hvað áramótin tókust vel og sjúkraliðar þurftu ekkert að gera, enda var ekkert hægt að hjálpa fólkinu sem slasaðist.

Könnun: Fćrslur
01. desember 2008 klukkan 14:26
Stuttar (0/13) 0%
Langar (12/13) 92%
Svo lengi sem það eru myndir til að skoða (1/13) 8%Svona líta niðurstöður síðustu kannanar. Stuttar færslur eru greinilega ekki mjög vinsælar og hugsanlega ekki ásættanlegar. Allir vilja langar færlsur, þá spyr maður sig: Hvað er löng færsla? Þær hafa nú ekki alltaf verið mega langar núna síðustu vikurnar.. kannski ég ætti að reyna að finna stór umræðuefni.. eða bara fara óþarflega ýtarlega út í alla hluti eins og ég gerði oft fyrstu mánuðina..
En ég er allavega farinn að hafa myndir í bloggfærslunum.. og það er þó næst vinsælast af þessu þrennu, þrátt fyrir aðeins eitt atkvæði.. það er gott fyrir fatlaða að getað skoðað eftir myndunum hvað bloggfærslan er um.
Könnun: Sjór eđa ekki snjó
11. nóvember 2008 klukkan 21:06
Grænt gras og stétt (6/16) 38%
Bara hálku og klaka (0/16) 0%
Sem mestan snjó (2/16) 13%
Millileið (2/16) 13%
Svarthol (6/16) 38%Þetta var hnífjafnt! Enginn vildi hálku og klaka! Enginn hefur áhuga á að fljúga á hausinn og hryggbrotna, né negla utan í umferðarljós á götunni.
Fjórir voru á því að fá snjó, hvort það var mikið af honum eða svona smá.
Svo var hnífjafnt um að fólk vildi hafa gott veður og græna grasið, spila fótbolta og fara í sólbað, eða bara ef fólk vill hreinlega heimsendi.

