Danmerkurblogg 6
Haha... plataði ykkur, sum ykkar héldu alveg pottþétt að ég hafi drukknað í lauginni. En það gerðist víst ekki.. ég er víst enn í Danmörku.. Shit, það er fimmtudagur, þessi vika er ekki búin að vera lengi að lýða! Sigga kom sl. föstudag, það var alveg yndislegt að fá Siggu hingað.. það var líka erfitt að vera kynlífslaus í svona langann tíma, þó maður var ekkert spentur á kvöldin með Atla fyrir hliðina á mér og allar stelpurnar sem ég var með allan tímann voru frænkur mínar! Ég, Andri og pabbi fórum sér ferð alla leið til Kaupmannahafnar til að sækja þær Siggu og Fríðu. Ferðin var ekkert meira spennandi en bara að sjá þær í fyrsta skipti í viku... ok það var merkilegt fyrir mig, en ekkert spennandi til að segja frá. Atli varð að færa sig og upp á efri hæðina á húsinu og ekki bara það heldur í "herbergi" á efri æð á annarri hæð... ef þú skilur. Sigga gistir þá í rúminu fyrir hliðina á mér.. Getur verið erfitt þegar maður er í stuði og er að fara að sofa en einhver annar er vakandi því herbergið okkar er við stofuna sem allir eru í og ef einhverjir spjalla saman frammi, þá heyrist allt inn! En fyrsta kvöldið hennar Siggu var lúllikvöld. Það var alveg nóg lúllað og ekki mikið gert.
Laugardaginn 17. júní fórum við á Himmelbjerget! Þegar við komum að "fjallinu" þá vorum við nokkurnvegin bara á toppnum, við keyrðum í einhvern klukkutíma frá húsinu og löbbuðum 150 metra, þá vorum við komin upp á topp á fjallinu. Turninn var á sínum stað, við keyptum svona rellur eins og krakkarnir eru yfirleitt með á 17. júní, við kláruðum nánast allar rellurnar, ég keypti samt ekki, Sigga keypti... ég held að það hafi verið tvær eftir þegar við fórum þaðan. Við keyrðum í gegnum bæinn Gamle Ry, flottur bær, en svo fórum við til Silkiborgar, eða Silkeborg eins og heimamenn kalla þetta. Ég var þar árið 2003, það var gaman að koma þangað aftur, þó ég mundi ekki eftir miklu í bænum.. bara íssjoppunn við höfnina, ég man svolítið eftir höfninni og nokkuð vel eftir kínverska veitingastaðnum sem við boruðum á árið 2003, en þegar ég borðaði á þeim veitingastað þá, þá var ég nýbúinn að borða og mamma og pabbi voru að reykja eða what ever, þá fór ég út að hringja í Bödda og spjallaði við hann... það er eitt eftirminnilegasta símtal sem ég hef hringt í Danmörku... Ha? Böddi, þú átt eiga það
En við keyptum okkur ís í íssjoppunni á höfninni, allir vorum nokkuð sáttir eða meira.. en þetta var eiginlega of mikill ís fyrir mig.... ég kláraði og lifði... ég kafnaði ekki á ísnum.... já, það væri merkilegt að kafna á ís, sem bráðnar síðan hvort eð er......... jæja... við fórum heim en við borðuðum ekki fyrr en mjög seint, fengum fyrst rækjucockteil..... en því ég er svo merkilegur og borða ekki sósuna sem er með, þá fékk ég spes rækjucockteil fyrir mig, án þess að biðja um hann, án sósu..... mmmmm..... ég borða rækjucockteil til að éta rækjurnar.. ekki fyrir sósuna! En aðalrétturinn var étinn kl 11 um kvöldið! Við Sigga vöktum mjög lengi, alveg til 5 eða einhvað, vorum með í Buzz og fylgdumst með SingStar, vorum samt ekkert að syngja.. ég er ekkert hrifinn af SingStar... fékk alveg rosa leið á þessu áður en ég fór að sofa, enda var svolítið tekið af sömu lögunum aftur og aftur.. En það var gaman af þessu framan af.
Sunnudaginn fórum við suður til Esbjerg, það var ekkert sniðugt, það var alveg tómur bær!.. Mæli ekki með að skreppa þangað á sunnudegi og skoða þar... það er ekkert merkilegt, þó var tívolí þarna sem flyst milli staða svona eins og það sem kemur í Smáralind á sumrin, Freak Out tækið var þarna og einhver fleiri.. en tívolíið var ekki opið, held að síðasti dagur tívolísins hafi verið dagurinn áður en við vorum þarna. En bærinn var tómur, gæti verið fínasti dagur á virkum dögum, eða á kvöldin en ekki um þrjú leytið á sunnudögum.... Allt tómt! Allir voru mjög svangir og við stoppuðum á McDonald's, amma er alveg vitlaus í það!! Djók..... en ég keypti mér Big Mac.. þða var nú ekki stór borgari.. hélt mér söddum að kvöldmatnum samt. Ég lenti svo í sundstríði um kvöldið. Ég, Sigga, Siggi Einars og Hulda vorum í sundstríði, enginn meiddi sig, þannig að allir skemmtu sér í skvett skvett leiknum og það var sundbolti með líka. En þða tók líka á!
Á mánudaginn fórum við í Djurs Sommerland! Við mættum um hádegi, og byrjuðum að fara í drumbana og svo Örnen með dönsku ö-i eða Örninn eins við myndum kalla hann á íslensku. Drumbarnir eru snilld! Maðu verður bara að prófa þá til að vita það for sure, ég fór tvisvar og í seinna skiptið RENNBLOTNAÐI bolurinn minn á einni skvettu!.. það var rosalegt... en ég var mest allan daginn sem var eftir ber að ofan. Í Erninum.. það var fínt... en ég þarf ekkert að fara aftur... ég fór einusinni og það var alveg nóg, þetta er ekkert svaðalegt tæki, þó í auglýsingunni segir "Störste og vildeste fugl i Danmark" eða "Stærsti og villtasti fugl Danmerkur" Svo fórum við í nokkur þæginleg og róleg "tæki" áður en við borðuðum og fórum í Thorshammer sem er stærsti rússíbani Danmerkur! Þessi fer kannski ekki í hring eða neitt rosalegt, en þetta er fínasti rússíbani! Ég náði að plata Siggu í Thorshammer, ég ætla ekkert að plata hana í fleiri rússíbana! Þú var næstum búin að skila matnum... það var ekkert gaman að sjá hana eftir rússíbanaferðina! En, þó stoppaði það mig ekkert til að fara fjórar aðrar ferðir! Amma og afi fórum meira að segja nokkrar ferðir! Það var sko fyndið, en líka mjög gaman að sjá þau í rússíbana og þau eru 75 ára! Eftir rússíbanaferðirnar buðum við Sigga nöfnum okkar (ömmu og afa) í hjólabátssiglingu, ég og Sigga hóluðum á meðan þau sátu og slöppuðu af og nutu útsýnisins sem var mest allt bara tré! Svo fórum við í vatnagarð sem er inni í Djurs Sommerland garðinum. Andskoti var vatnið kalt!! En það var samt hægt að leika sér í fullorðins barna kastala... það virkar einhvernvegin þannig að kastalinn lýtur fyrir að vera barnakastali útaf hann er svo litrikur, en svo er hann svo stór að fullorðnir geta alveg auðveldlega verið í honum án þess að beygja sig niður eða einhver leiðindi! Ef þú skilur ekki, þá verðuru bara að fara og tékka sjálf/ur. Eftir vatnslaugagarðinn, þá fórum við í tæki sem heitir Speedy Gornsalez. Ég fór fyrst ferð með Ívari Atla. Við sko fórum hratt!! En Sigga bað mig svo að fara með sér... jæja, hún átti hugmyndina.. ekki mér að kenna ef hún ætlaði að reyna að skila matnum aftur! Við fórum nokkuð hraðar en við Ívar, en við lifðum, og Sigga reyndi ekki að skila matnum aftur, heldur gátum við bæti notið tækisins. Útaf því að það er alltaf teknar myndir í hverri ferð sem er farið og reynt að selja myndirnar, og það er hægt að setja myndirnar í lyklakyppu, þá ákáðum við Sigga að gera það, kaupa lyklegkyppu með okkur á! Við vórum aðra ferð, en myndin var víst ekki nógu góð og allir voru að fara aftur í Drumbana! Við fórum þangað, Vorum með Atla og Huldu í drumb. Myndin var ekki nógu góð, þannig við fórum aftur og reyndum aftur! Myndin var frábær! Við keyptum okkur öll lyklakyppu! Hulda var með pós, Atli var með góða grettu og hárið hans skemmdi ekki, Sigga öskrandi en hafði samt gaman og ég ber að ofan og með hendurnar upp í loftið! Hulda líkti mér samt við Jesú. En eftir þessa drumb-ferð, þá var lokað garðinum.. sem er svolítið lélegt, því klukkan var bara fimm! Við fórum heim í Kolding, borðuðum í Stor Center, þar sem Bilka, matvörubúðin er. Jensen's Böfhus vildi ekki taka við okkur, það var klukkutími þar til það lokaði og þjónustustúlkan sagði að það bara væri ekki til matur! Sem er voða lélegt.... hefði alveg geta sagt satt og sagt að þau "gætu" eða réttara sagt vildu ekki taka við svona stórum hóp! Flestir fóru þá á kínverskan stað sem er fyrir hliðina, en ég fór með Sigga Einars og nokkrum öðrum á ítalskan stað á móti steikhúsinu. Ég fékk mér Lasanga og Siggi og Margrét mamma Ívars Atla líka. Teddi litli fékk pizzu, Atli, Andri og Fríða fengu sér held ég líka pizzur. Maturinn var alveg súper! En drykkirnir voru allir goslausir! Við borguðum matinn, en ekki drykkina... Það var samt vesen með einn ítalskann homma þarna, hann henti matnum bara í okkur og hlustaði ekki á kvartanirnar! Hann sagði bara "This is not Coca-Cola, this is Pepsi and Pepsi Max" og strunsaði bara burt, við hugsuðum bara "fuck it, ég nenni ekki að kvarta núna, við étum bara og kvörtum svo" enda snerti enginn á drykknum sínum. Ítalska tussan gat varla sagt neitt þá. Enda var maður líka svo móðgaður að maður var næstum búinn að labba út um leið og maturinn kom! Maður var samt sáttur að borga ekki drykkina! Horfðum á Friends um kvöldið, minnir mig alveg örugglega að það hafi verið það kvöldið.
Á þriðjudaginn fórum við til HM-lands! Jebb.. ég fór til Þýskalands! Við fórum til Flensburg! Það er skrifað með U ekki O eins og stendur á mörgum stöðum, t.d. á skiltum í Danmörku.... hvað vita Danir annars? Ef þú ert að fara til Flensburg og á kortinu þínu stendur Flensborg, þá ertu annað hvort með kort af Hafnarfjarðarbæ eða gallað kort. Kannski bæði, því kannski væri annar galli á Hafnarfjarðarbæjarkortinu. Aldrei að vita. En, já! Þjóðverjalandið var spennandi! Við keyrðum einhvern klukkutíma til Flensburg og fórum í verslunarleiðangur og já ég keypti geisladisk. Ég keypti Lordi diskinn nýja, hann var ekki dýr, kostaði 9,90 Evrur, það er minna en þúsund kall! Ég keypti líka skó og Enska fánann.. Það er snilld! Hey, svo mátti ég ekki gleyma Siggu og ég keypti mjög fallegt armband handa henni, en hún hafði áður í annarri búð keypt nokkra hringi og hún lét mig velja hringana, hún sagði að ég væri með töff smekk! Strákar, ef þið þurfið að velja skartgripi fyrir kærustuna, give me a call.. ég er ekki lengi að velja ef ég veit af hverju ég er að leita! Við völdum víst réttan dag til að fara til Þýskalands, því þennan dag voru Þjóðverjar að spila sinn þriðja leið í riðlakeppninni á móti Ekvador. Germany var öruggan 3-0 sigur, þó að bæði liðin voru örugg áfram í keppninni, en Þýskaland vann A-riðil. Allt varð bilað í Þýskalandi! Meira en annar hver bíll var flaggandi og flautandi og það var allt klikk... ég get ekki ímyndanð mér hvernig þetta væri ef þeir ynnu heimsmeistaratitilinn! Það væri sko vægast sagt klikk!! En við fórum á þetta fína Þýska steikhús. Þjóninn var sko með stórt nef...... en það var víst hægt að finna mann á bak við nefið. Ég pantaði mér Viener Schnitzel, það var mjög gott! Atla var einhvað flökurt og hann snerti varla matinn sinn. Ég kláraði minn mat og át mest allt af Atla mat líka, Hulda fékk smá af Atla mat... mmmm... góður matur! Atli var með einhvað kjöt á pinna eða einhvað.. það var ekki eins gott og mitt,, en það var nammigott! Við fórum heim og ég náði fyrri hálfleik af leik Englands og Svíþjóðar, ég nennti af einhverjum ástæðum ekki að horfa á seinni hálfleik, en bæði liðin komust upp úr riðlinum. En ótrúlega sorglegt að Owen verður nú frá í 5 mánuði því hann meiddist á fyrstu mínútu og verður víst ekki með það sem eftir er af HM og ekki heldur í haust. ![]()
Í gær, miðvikudag, var planað að fara að hitta Óla! Sigga þekkir hann mun betur en ég, ég hef ekki hitt hann nema 3-4 sinnum núna... frábær náungi, gaman að honum. Hann býr í Kolding ekki langt frá Bilka. Ég og Sigga komum niður´i Stor Center um hádegi og keyptum okkur einhvað í svanginn, ég reyndi að finna buxur í búðunum, Sigga fann sér nokkuð að fötum. Ég fann næstum buxur, en þær voru bara of stórar. Við hittum Óla um tvö. Ég og Sigga fengum okkur aftur að borða, ég fékk mér borgara sem átti að vera borinn fram á Coca-Cola frispídiks, en hann var það ekki.... urrrr.. og Sigga fékk sér pizzusneiðar. Við tékkuðum í nokkrar búðir og fórúm í Bilka og keyptum í matinn og svona, ætluðum að baka pizzu um kvöldið! Sigga keypti rauðvín með hjálp Óla sem á að vera gjöf til tengdapabba. Við löbbuðum svo til Óla og hann bútaði okkur niður og setti okkur í pizzuna síðan, sögulok!..... ekki? ertu ekki að trúa því? jæja... ok.. Óli býr í 49 fermetra íbúð, það er ólöglegt í Danmörku fyrir tvo að búa í svona lítilli íbúð. Það verður að vera 50 fermetrar! Það var smávegis flippað og svo var pizzan búin til. Ég var sendur í að horfa á Simpson.. eða Óli bauð mér að horfa á sjónvarpið og ég fann Simpson, á meðan gerðu þau pizzurnar, þær voru nefnilega tvær. Sigga gerði sósuna og Óli gerði degið. Ég var samt ekkert að fylgjast mikið með pizzunum, en þær voru sko Ljúffengar!!mmmm...mmmmm nammi! Mikið álegg og rétt bökuð, þetta voru frábærar pizzur! Það var samt voða sorglegt að fara snemma frá Óla, því Þröstur kom svo snemma að sækja okkur! Siggi Einars var líka með honum og við Sigga fórum með Sigga og Áu upp í hús. Við komum heim og horfðum á leik. Svo var bara spilað í gærkveldi.
Í morgun vakanaði maður við að allt fólkið var vaknað og var að spjalla saman og einhvað bara svona eins og venjulega. Við fórum í miðbæinn, við Sigga höfðum ekki komið þangað áður. Það var ekkert gaman, það voru bara kvenfatabúðir og bara búðir sem höfðuðu ekki til mín. Við vorum bara í einhverjum kvenfatabúðum! Ég var kominn með algjört ógeð og leið á þessu, leiðinlegar búðir með leiðinlegri tónlist inní! Sigga varð svolítið fúl útí mig því ég varð pirraður á að labba bara á eftir þeim og var í fýlu. Ég fann svo Jörgen & Jörgine eða einhvað álíka og tékkaði þar inn, fann ekkert, kannski bara útaf ég var búinn að missa allan áhuga á að gera einhvað sem tengdist að versla útaf fýlu.Við komum heim, Sigga vildi fara í sund, ég nennti því ekki strax, fór að spila. Ég, Sigga, Hulda og Ívar Atli spiluðum Rommý, ég vann! Þá fór ég í sund með Siggu... það var gaman. Um leið og við komum uppúr þá fórum við að éta. Svo var spilað meira og svo tölvan.. og nú er ég hér, en þegar flestir lesa þetta þá verð ég að gera einhvað allt annað!
Ég kem heim seint á laugardaginn... ætli ég skrifi nokkuð þangað til! Ég á samt eftir að hringja í Marie! Geri það á morgun! Kannski skrifa ég hér hvað við tölum um! Það er allavega búið að vera gaman í DK, þó maður sakni alveg vinanna, rúntanna, fuglsins, íslensk Cokesins og vatnsins! Þarf ekkert að sakna vinnunar, vakna of snemma til að byrja að vinna! jæja.. ég er búinn.. þetta var alltof langt blogg.. það tók góðan tíma í þetta... þetta ætti alveg að duga fram á laugardagskvölds eða sunnudags! Góða nótt!
Danmerkurblogg 5
En ég var ennþá pirraður þegar ég vaknaði í morgun.. allir vaknaðir og að fá sér að éta, ég fór framúr svona klukkutíma eftir að ég vaknaði kannski einum og hálfum tíma seinna, ég nennti ekki framúr.. en mamma kom með svona viftu ínn í herbergi þannig það ætti ekki að vera ýkt þungt loft í herberginu þegar maður vaknar.
ég kom mér framúr og fékk mér smávegis að éta og mamma og pabbi fóru að hitta fólk sem þau þekkja hér í Danmörku, allavega Gert sem þau kaupa föt frá í búðina eða einhvað! Svo týndist allt fólkið út og ég var einn eftir með hinum svefnpurrkunum.. Atli og Andri voru báðir en sofandi.. afi var vist líka heima. Ég fór bara í tölvuna, nennti ekki að leggja kapal í allan dag, þannig ég var England og gekk mjög illa í leiknum, gerði jafntefli við Brasilíu og tapaði Austurríki, en Andri kom niður og ég bauð honum að vera með og ekkert gekk hjá okkur.. Atli vaknaði en var ekkert að spila með. Englandsleikurinn fór að fara að byrja og við horfðum á hann, þá fór fólkið að týnast aftur inn í húsið. Ég horfði á fyrri hálfleik og staðan var 0-0. Ég tók smá bagminton við Ívar, svo Huldu og svo Ernu, ég vann Ívar og Huldu, en Erna bakaði mig. Svo spiluðum við Ívar við stelpurnar og náðum í 18-15 yfir en þær rétt mörðu okkur 20-19.. ýkt svekkjandi!.. Þegar ég kom til baka að horfa á liekinn, þá var alltí einu 80 min!... ég hélt að ég hafði bara verið í smá stund.. En staðan var enn 0-0! á 82. min, þá skoraði Peter Crouch fyrir Endland, þá fór Liverpool tussan einhvað að rífa sig.. og á 91 min skoraði Gerrard og beljan þarna var einhvað "uuu.. Poolararnir eru bara að skora" og einhvað.. ætti bara að lemja hann!.. En England vann þó að Trinidad & Tobaco skoraði rangstöðumark mínútu eftir seinna mark Englendinga!
Í fyrramálið sækjum við Siggu og Fríðu... þær verða saman í flugvél... vona bara að þeim semur vel
Meira seinna nema ég drkkni í lauginni eða einhvað!
Danmerkurblogg 4
Vá hvað þetta var fyndið í nótt.. allir voru farin að sofa í gær nema ég Atli og Andri. Við vorum bara að spjalla saman í rólegheitunum og kvarta okkar á milli yfir fólkinu sem kvartar yfir að við vökum alltaf svo lengi. Andri stoppaði allt í einu og var mjög undrandi og benti fram ganginn og sagði "Hey, strákar!! Froskur!" Ég og Atli skutumst framúr sófanum og tékkuðum og það var froskur á miðju gólfinu! Við stóðum upp og ætluðum að tékka á honum og henda honum út. Froskurinn labbaði einhvað frá okkur og byrjaði svo að hoppa... og það var mjöög fyndið að sjá þetta fyrirbæri hoppa. Ég náði í eina myndavél af mörgum sem voru þarna í kringum okkur og við tókum 2-3 myndir af froskinum og líka einhvað upp á video! Svo sóttum við glas og Souduko bók eða hvað þessar hlevítis tölu krossgátur heita.. ég er ekkert fyrir þær, en við notuðum bókina og glasið til að henda frosknum út. Atli setti froskinn á borðið sem er fyrir utan hurðina sem liggur út í garð og það fyrsta sem froskurinn gerði var að hoppa af borðinu og það kom einhvað splat hljóð sögðu þeir, en ég var enn inni þegar þeir voru komnir út. Froskurinn lifði og hvarf í myrkrið eftir að við fórum aftur inn. Veit reyndar ekkert á hvaða myndavél ég tók myndirnar af froskinum þannig ég veit ekkert hvort ég finn þær endilega aftur!
Í morgun fórum við öll í Djurs Sommerland, þar sem "Thorshammer" sem var allavega stærsti rússíbani í DK árið 2003, ég veit ekkert hvort sá sem ég fór í í tívolíinu sé stærri, en gæti vel verið að Thorsammer sé stærri. Við löggðum af stað kl 10:30. Þegar við vorum komin ca. hálfa leiðina að skemmtigarðinum, þá tók pabbi eftir skurði í dekkinu á bílnum okkar. Mamma hringdi á hina og þessa staði til að fá vonandi að vita hvernig ætti að redda þessu í gegnum Hertz fyrirtækið og tryggingarnar á bílnum. Við vorum búin að vesenast í smá tíma með dekkið og hringingar, þá var sagt að einhver myndi koma eftir alveg uppí klukkutíma.. ef þú skilur mig. Við tókum því bara rólega og flestir fengu sér að borða, borgara eða einhvað gott. Ég fékk mér ekkert, ég var enn saddur.. ég var búinn að borða alveg nóg klukkutíma áður. Ég borðaði samt 1/3 af Huldu borgara og rændi nokkrum frönskum... þetta var bara ekkert góður borgari, það var allt of mikil kokteilsósa í borgaranum... en franskarnar voru muuuuun betri.. namm namm. Við vorum búin að bíða í klukkustund og tuttugu mínútur þegar mamma hringdi aftur og tékkaði á hvort einhver var á leiðinni. Og gettu hvað.... Enginn var að koma. Svo sagðist konan einhvað ætla að hringja aftur, en við vorum búin að komast að því að þetta var bara búið að vera svona síðan áður en við fengum bílinn, felgan var rammskökk og beyglan löngu byrjuð að ryðga þannig að pabbi nennti bara ekki að hanga þarna lengur og við löggðum af stað til baka til Kolding því klukkan var orðin of margt fyrir garðinn en ekkert kom fyrir dekkið á leiðinni til baka. Konan sem ætlaði að hringja aftur í mommu hringdi svo aldrei! Léleg þjónusta, þá endurgreitt! Pabbi fór á Hertz bílaleigu og tékkaði á þessu og þetta verður lagað á morgun. Eins gott að það verður búið að laga þetta á föstudaginn, þá förum við að sækja Siggu og væntanlega Fríðu líka!
Eftir Hertz ferðina fórum við í Balka eða hvað matvöruverslunin heitir... ég er að reyna að læra nafnið á henni, gengur erfiðlega!.. En Fona og Stereo Studeo eru þarna í þessari verslunarmiðstöð... vá hvað ég er með íslensk og löng orð! matvöruverslun og verslunarmiðstöð!... Ég tók Atla með mér í Stereo Studeo og ég keypti Dumb And Dumber! Ég veit... mjög gömul mynd, en ég bara varð.. maður sé þessa mynd varla á videoleigum einusinni heima! og þetta er fokkin snilldar mynd!!! Svo ekki bara það, þetta er dýrasta mynd sem ég hef keypt mér... ég held að ég sé ekki að ljúga þar.. ég kaupi myndir yfirleitt ekkert nema þær séu á 899 mest... en þessi kostaði 120 kr. dk sem er ca 1500 kall! Svo sá ég Mark líka, hún kostar líka 120 kr dk. ég bara gat ekki keypt báðar! Atli keypti Burnout Revenge eða einhvað... leikurinn kom allavega út á síðasta ári! Leikurinn kostaði mun minna en heima á Íslandi! Svo fórum við inn í matvöruverslunina og Atli keypti PS2 fjarstýringu og 900 gr. af Stjerne Mix! (einn poki) það kostaði einhvern 500 kall! Fyrir utan matvöruverslunina keypum við okkur ís, minn var með fjórum kúlum, lakkrís, súkkulaði, "lollypop" og valhnetu svo var venjulegur vanillu ís ofaná og einhvernvegin kókosbolla eða þannig ofan á ísnum... það kostaði ekki meira en 350 kall íslenskar!! Sigga, manstu eftir Crepes? við settum oft valhnetur á það! mmmmmmmm ég vil fara aftur til Krít!.. En ég er farinn úr þarna rigningarlandinu og er í þónokkurri sól, þó að það kom smá rigning í dag, og ekkert voða mikil sól... sólin kemur aftur ef stjörnuspáin, ég meina veðurspáin er rétt!Við komum heim, ég er ekkert búinn að gera neitt sérstakt síðan, nema ég var næstum búinn að rústa rommýi, en í síðustu 5 spilunum þá náði á 130 stigum, en ég þurfti 120 stig til að vinna (var með 880 stig) og ég náði alltaf einhverjum örfáum stigum og náði aldrei upp í 1000 stigin, og ég held að þegar ég náði loksins 1010 stigum, þá fór Hulda framúr mér! Þessar litlu systur!
Þjóðverjar unnu áðan 1-0 gegn Póllandi, þeir skoruðu á 91 min... það er örugglega ekki leiðinlegt að vera Þjóðverji núna! en rétt fyrir markið voru þeir búnir að skjóta tvisvar í slánna!!
Morgundagurinn er ekki ákveðinn, en spurning hvort það verði verslunardagur, ég á ekki mikið af peningum eftir, ég átti ekki einusinni mikinn pening þegar ég kom og ég er búinn að eyða alltof miklum peningum! Ég kaupi örugglega ekkert, nema ég finni einhverjar mega buxur, mig vantar buxur.. ekki gallabuxur samt! Ég veit að sum ykkar eruð að hugsa um gallabuxur!
Búinn i dag... kannski meira á morgun!
Danmerkurblogg 3
Ég lenti í nettu áfalli áðan, Sigga verður örugglega ekki sátt.. því armbandið sem hún gaf mér slitnaði
Næstu leikir í dag verða Frakkland-Sviss og Brasilía-Króatía... ég er viss um að báðir leikirnir verða góðir.... ég held að ég haldi frekar með Frökkum og Króötum... þó að Ronaldinho sé einn að mínum uppáhalds leikmönnum og það er alveg unaður að sjá hann spila.. en það er ekkert gaman að Brassar vinna allar heimsmeistarakeppnir! En áfram England!!
Aladin kom á teppinu í heimsókn og andinn sýndi okkur töfrabrögð.... svo útaf það er alltaf svo heitt hérna.. þá galdraði andinn frábært loftræstikerfi í öll herbergin!.. Jafar sneri aftur og Jasmin pissaði í runnunum!.. Abu missti hattinn sinn og Gógó, eða hét kannski fuglinn það ekki.. hann skrapp í sund og nagaði gt á vegginn því hann hélt að það væri kexkaka..... Stafurinn hans Jafars er farinn að labba sjálfur.... Don't ask, ég skil þetta ekki einusinni sjálfur!
Danmerkurblogg 2
Ég vaknaði í gær um 15 leytið.. fékk mér smá í svanginn og skeindi klósettpappírnum..
Ég gerði nú ekkert mikið... og nýtti frábæra veðrið ekkert voða mikið heldur, ég var mest allan daginn inni og horfði á bolta og spilaði bagminton og skaut einhvað á körfuna líka... Um kvöldið borðaði ég einhvað gott.... Svínakjöt minnir mig... en það var gott.. en ég var svo uppgefinn.. veit ekki alveg hversvegna, en ég var ekkert búinn að djöflast mikið í íþróttum!.. Bara englast...... Djók!
Svo kom kvöldið og ég Hulda og Andri spiluðum Rommý... ég skíttapaði og Anrdi rúllaði því upp.. hann var kominn með einhver 1000 stig yfir mig! Atli svaf allan daginn... kom framút um kvöldmatarleytið, spilaði einhvað bagminton og fór aftur að sofa eða einhvað.. kannski gerði hann einhvað meira... hann svaf allavega ROSALEGA mikið! Hann fór svo líka fyrstur að sofa og vaknaði líka síðastur.... En ég vakti til um 3 í nótt og vaknaði um 10-11 leytið!..
Hey, ég fór svo í bæinn, í Kolding, fjótlega eftir að ég vaknaði. Mamma, pabbi, Atli, Hulda, amma, afi, Brynki (Runki) og Ásta fórum saman að kaupa í matinn og tékka á búðunum í kring.. restin af fólkinu fór í Legoland!.. Við byrjuðum að fara í búðirnar, ég labbaði pretty much einn.... það var í raun ekkert gaman þarna.... ég fór í Fona, hún var ekkert jafn skemmtileg og í Köben.. kannski svona eins og hálf Skífan í Kringlunni... ég fann ekkert þar. Ég gekk svo mollið þarna... og leit inn í nokkrar búðir... fann ekkert áhugavert fyrr en ég kom inn í Intersport, þá það Stadium Arcadium í tækinu hjá þeim og ég hlustaði á eitt lag á meðan ég gekk í gegnum búðina og þá var næsta lag að byrja þegar ég gekk út. Ég fann svo aðra búð, Stereo Studio, þar fann ég nokkra diska á engann pening! Open Up And Say.... Ahh! með Poison, Rocks með Aerosmith, Bat Out Of Hell II með Meat Loaf, Facelift með Alice in Chains og Live at Abovabo 96 með Alice Cooper. Við keyptum í matinn og það var nú alveg helvíti mikið.. við vorum á tveim bílum og fylltum þá báða alveg! Keyrðum heim, ég er búinn að vera að drekka síðasta íslenska Coke-ið mitt síðan ég kom heim, en ég er líka búinn að horfa á USA - Tékkland, og til hamingju Pavol með glæsilegan sigur!!! 3-0!! ég spilaði smá Bagminton í hálfleik. Sigga elskan mín var að hringja um leið og ég kláraði að skrifa hvaða diska ég keypti og hún lét mig vita að hún kemur hingað og flýgur með Icelandair, en ég flýg með Iceland Express, en það munar 8000 kalli og það er meira rúmpláss í Icelandair svo er ekkert mikill tímamunur þegar við förum heim. Ég hef þá einhvað til að hlakka til í vikunni! Á morgun er væntanlega ferð til Þýskalands! Kíkjum til Flensburg og einhvað... Ég er farinn að éta SPAGHETTI.... mmm! BÆBÆ
Danmerkurblogg
Já, ég gleymdi að segja að á Leifstöð, þá smakkaði ég versta egg sem ég hef nokkurntíman smakkað, það var örugglega bara gamalt eða einhvað... þetta var bara venjulegt harðsoðið egg, bara kalt... og vont á bragðið, en þarna eftir dottið og rólubiðina þá fórum við á ítalskann satð sem heitir Ítalía sem er þarna inní tívolíinu. Við pöntuðum okkur 2x pizzur en Ívar borðaði með sinni fjölskyldu og í alvöru.... það var fiskilykt af pizzunum!.. Shit, ég var búinn að éta ca. hálfa pizzu, þá tók ég bita með bara osti.. og allt fiksibragðið... þetta var ógeð, og versta pizza sem ég hef smakkað!... Alveg ótrúlegt, versta egg og versta pizza á sama degi og í sitt hvoru landi, hverjar eru líkurnar? Það bætti líka ofaná að pizzan var of blaut og svona
Við fórum heim á hótel og ég hlustaði á tónlistin sem ég keypti mér, tékkaði á 1-2 lögum með Evergery, hljómaði nokkuð vel svona fyrst... er ekki búinn að setja það í síðan, en Red Hot Chilli Peppers fór svo í og auðvitað klikkar þessi dikur ekki! Atli sofnaði fyrstur, með nýja i-podinn sinn í höndunum, í mjög fyndni stellingu, við Hulda tókum nokkrar myndir af því áður en við löguðum hann. Við vöknuðum kl 9, það var ekkert auðvelt þó að við sváfum í einhverja 10 tíma, fengum morgunmat í lobbýinu og fórum aftur upp að sofa smá meira... svo vaknaði ég til að setja í töskurnar og þau líka og fórum niður í lobbý með töskurnar og biðum eftir að pabbi, Hannes, Siggi Einars, Siggi Sív. er ekki með, Þröstur og Brynjólfur eða Brynki eins og flestir kalla hann eða Runki eins og við Atli köllum hann, þeir sóttu bílana, allt 7 manna bílar, en ekkert pláss fyrir töskur ef það er verið að nota öll 7 sætin.. Við erum á Möztu.. draumabíll Huldu "hún segist vilja fá Möztu, þó ekki endilega þennan" Við tróðum í bílana, og bílarnir voru fullir af fólki og töskum, og við löggðum af stað. Ég hélt áfram að hlusta á tónlistina sem ég keypti: Octavarium og Eric Clapton.
Þegar við komum á svæðið í kringum húsið, þá vorum við ekki búin að finna húsið, þá urðum við að fara í búð áður en hún lokaði, en bílarnir voru fullir af töskum. Við keyptum Shitload af drasli! En við náðum samt að troða öllu inn í bílana, nokkrir þurftu að halda á einhverju.. Atli hélt á bjórnum og Andri hélt á klósetpappírnum!.. sanngjörn skipti ekki satt? Svo rúlluðum við upp í húsið! Lýtur svo vel út að framan!... virðist vera svo stórt og glæsilegt.. jújú, það er stórt... og það er glæsilegt að innan.. sko.. það er ein hlið á húsinu ýkt flott! en restin er bara fjós!... örugglega ekki notað sem fjós, en var örugglega gert fyrir nokkrum árum!... Að innan er húsið ótrúlega flott!!!.. Tvær hæðir, Bagminton völlur inni og karfa og körfubolti þar inni líka, stór stofa flott eldhús, inngangurinn er geðveikt flottur, billjardborð uppi og stofa þar líka og svo eru hellingur af herbergjum og klósett, sturta og bað inní mörgum herbergjum líka! Ég og Atli erum saman í herbergi, shareum rúmi saman!.. Grrr... bræðraástin í hámarki! Við höfum líka stórann fótboltavöll fyrir okkur!
Síðan við komum hingað er ég búinn að djöflast og vera í bagmintoni og skjóta á körfuna... já ég veit.. ég og körfubolti??... skrýtið.. en mér leiddist.. HAHAHA.. Atli var að koma og sagði mjög oft "DÍSES KRÆST" þegar hann sá hvað þetta er langt!! Já, en ég er líka búinn að spila smá billjard og það er búið að vra rosa gaman, svo vann England Paraguay 1-0 og Svíar gerðu markalaust jafntefli við Trinidad & Tobaco... þannig England er efst í sínum riðli! Argentína vann Fílabeinsströndina 2-1. Ég horfði á einhvað en missti af Englandsleiknum því við vorum ekki komin í húsið! Jú, ég sá 5 min í búðinni, þar er ég keypti líka flotta Englandspeysu!
Ég fékk kjúklingbringur í kvöldmatinn og það er búið að slappa ágætlega mikið af í kvöld!
Gaman að þessu, þetta er búið að vera langt blogg... klukkan er núna 5 um morguninn í DK! Au Revoir.. nei.... ég meina Vi ses!
Styttist í DK
Já, þegar þú loksins lest þetta fá verð ég væntanlega í Danmörku! Ég er núna heima og fer niður á völl klukkan 4. Við förum svo í loftð kl. ca. 7! Ég var með Siggu í kvöld.. ég kvaddi hana og það á örugglega eftir að vera erfitt að hitta hana ekkert í 15 daga. Auðvitað ég ég eftir að sakna ykkar hinna líka, Svenni, Pavol, Sigurgeir, Jón og Margrét! Ég býst samt við að skemmta mér þarna úti, með allri stórfjölskyldunni! Eins gott að ég geri það!
Alli verður hjá Siggu... varla finnur hann sjálfur vatn hérna heim og finnur matinn sinn sjálfur.... held ekki..
Hey, believe it or not.. ég fékk símhringingu áðan... shit!... Ég fer bara að verða hræddur núna.. Lambi hringdi... jæja, ég svara, hann er þá víst byrjaður að vinna hjá Select í Breiðholti. Svo spurði hann mig hvort ég væri að gera einhvað seinna í dag.. og það var akkúrat það sem ég óttaðist að hann myndi gera! en ég hafði góða afsökun: "ég fer til Danmerkur á morgun" sagði ég, þannig ég fer væntanlega að klára að pakka og svona.. þá sagðist hann ætla að spurja hvort ég væri kannski til að fara með honum á Omen... Jújú, ég hef alveg áhuga til að tékka á myndinni.. varla einn með honum... ef Ármúla pakkið er með, þá er mér alveg sama... en mér mundi lýða svolítið asnalega ef ég myndi hitta hann bara einn!
Ég er ekki alveg búinn að pakka, ég er búinn að setja fötin í tösku og flest allt mikilvægasta, nema ég á eftir að sortera tónlistina í geisladiskatökunni, taka nokkra úr og setja aðra í sem ég á væntanlega meira eftir að hlusta á! En Pavol, ég sendi þér sms áðan, og ég ætla að segja aftur sorry að ég sé ekki búinn að skila Nickelback diskunum, mér finnst svolítið asnalegt að vera með hluti í láni svo fer ég út, og ég get ekkert skilað þeim á meðan ég verð úti! Svo er Svenni líka með Aerials smáskífuna mína í láni! En ég er ekkert að flýta mér að fá hana til baka!
Bananinn rakaði af sé bringuhárin og smjattaði á eplinu, Doddi dróg dólginn á eftir sér þegar Kobbi datt niður bjargið og missti fótinn út fyrir skipið sem var að sigla þrettán kílómetrum í burtu frá Titanic, en Jack þiðnaði og spjallaði ensku frá árinu nítjánhundruðogtólf(1912) en klakinn fór ekki af honum, þannig að Jack var bara lifandi í klaka og gat bara hreyft augun og sniffað lím, en þá kom gamla konan og stökk út í sjóinn og sótti hálsmenið og setti það á Jack og það sannar að Leonardo DiCaprio er hommi!
Sorry með allar litina, mér leiddist!
Så man rejser til Danmark i morgen så vi ses og Skeggi danske siger hihi(bæbæ).
06/06/06
Það er samt allt að gerast í bænum Hell í Bandaríkjunum, þar er allt vitlaust, þar er fólk að selja boli, bolla og allan andskotann með þessari dagsetningu og einhvað rosa dæmi, kristnir menn þarna eru ekkert voða sáttir en stunda sína kirkju og einhvað kjaftæði... ein spurning....
Hvað er kristintrúað fólk að búa í bæ sem heitir Hell??
Ég ætla bara að hafa þetta stutt í dag, ég er búinn að breyta síðunni fullt eins og þú kannski sérð og ég er að fara að sækja pizzu! BæBæ, cya later Krókódíll!
67 ára!
Talandi um að vera gamall... þá send ég enn við það sem ég sagði á Krít síðasta sumar.. ég sat við borð með Siggu og pabba hennar eða tengdó ef ég mætti segja það
En samt ekki.. þeir munu heita einhvað annað.. sko... ef maður pælir í því... Karlar hafa verið í möörg ár verið að reyna að vera flottir fyrir kellingarnar.. og greiða hárið og vera ýkt töff og svona.. rokk kom í tísku á sínum tíma.. en þar á eftir komu diskóið og fleiri tónlistarstefnur sem dóu.. rokkið lifir enn.... og mér finnst eins og rókkið fari hækkandi aftur en það er þetta djöflakjaftæði á rokkinu, og sumir rokkarar líta drungalega út og einhvað þannig ða "venjulegt" fólk heldur að það séu aðal rokkararnir... þannig að rokkarar eru yrirleitt bara skrýtið fólk... en á meðan eru "venjulegu" strákarnir að verða kellingalegri og kellingalegri, eins og núna eru hnakkarnir að ræna speglunum af stelpunum og ræna meikinu og svona.. og þegar ég verð orðinn 67 ára, þá verða aðal gaurarnir í kjólum og komnir með gerfibrjóst og þegar þeir eru orðnir gamlir og ég loksins dauður, þá verða þáverndi hnakkar örugglega skerandi typpin af og allt bara til að vera loksins alveg eins og konan... svo deyr þetta loksins út og rokkarar og þeir sem eru þarna á milli rokkari/hnakki.. en er hvorugt, við lifum af og rokkið lifir áfram, poppið verður alltaf til líka held ég, en rappið er að deyja... það deyr á undan tecnoi og poppi.. eins og diskóið, það er dautt,, það er enginn að gera diskótónlist lengur... eða hver þá?
Já, þegar ég verð gamall.. þá verður lífið örugglega auðveldara og mjög skemmtilegt, nægur tími til að slappa af og skreppa til útlanda. Samt er sorglegt að þegar ég verð svona gamall, þá fer ég væntanlega ekkert á marga tónleika.. því Audioslave, Weezer, System, Foo Fighters verða allar hættar, Rolling Stones verða örugglega allir dauðir þó að tónlistin þeirra mun ekki deyja.. Arctic Monkeys verða örugglega hættir, enda á mínum aldri.. þá yrði ég að fara á einhverja tónleika með einhverjum sem er ekki enn búinn að meika það, nema Brandur Enni fari að breyta um tónlistarstíl... eða einhvað....
Þegar ég verð 67 ára, þá eru örugglega um 40%+ líkur á að ná 100 ára aldri, ég veit samt ekkert hve margir ná núna 100 ára aldri! Kannski Sigga verði búin að leyfa mér að safna skeggi þá, ég raka mig samt alltaf aftur á endanum! Ég lofa...
Hey já, ég er að fara til DK bara á föstudaginn! Það er spennandi.. ég er búinn að taka nokkrar peysur og boli frá sem ég ætla að taka með til Danmerkur, það er sorglegt að geta ekki tekið allt, ég veit ég er eins og kona, langar að taka allann skápinn með, en munurinn á mér og konu er sá að ég vel út fötunum, en ekki konan!
Æj, sorrí ég var að éta, ég hef samt ekkert miklega pælingar í viðbót, Enjoy... þú mátt meira að segja lesa þetta blogg aftur ef þú vilt! En bara ef þú vilt, ef þú vilt það ekki þá máttu það ekki!
Bílaţvottur og fleira!
Það er soldið farið að minnka bloggið hjá mér.. kemur ekki nema á 2-3 daga fresti.. ég er allaf að gera einhvað.. yfirleitt þegar ég kem í tölvuna, þá blogga ég.. svo þegar ég er búinn að blogga þá geri ég einhvað annað.. Ég er búinn að gera nóg alla helgina, kvöldið þarna sem ég var svo svakalega þreyttur.. þá var fór ég til Siggu um kvöldið og horfði á Van Wilder og sofnaði, lúllaði til 15 og Sigga dróg mig framúr til að þrífa bílinn! Já ég og þrífa bílinn... það er ótrúlegt, ég hef bara ekki þrifið bílinn síðan... eitt og hálft ár síðan eða einhvað.. og já, hann var vægast sagt ógeðslegur að innan.. og frekar brúnn að utan.. Sigga var svo elskuleg að vera á háþrýstidælunni og sprautaði skítinn af.. og ég var inní bílnum að þurrka af öllu að innan... svo virkaði ekki ryksugan, ég ryksugaði farþegasætið.. and that's it, þá vildi ryksugan ekki ryksuga meira.. ryksugupokinn virtist ekkert alveg vera fullur... þannig, ég ætla að halda að þetta var einhvað annað! Svo settist ég inn í bíl, og það var svo gaman að keyra bílinn, allt var svo hreint!
Ég fann svo nýtt heimili fyrir hesta... mmm.. á disknum! nammi!.. ég fékk folaldakjöt.... og já, þið sem hafið ekki smakkað hrossakjöt, þá eru hestarnir svo gómsætir að þeir ættu bara að eiga heima á disknum!
Ég fór svo á Da Vinci Code í bíó í gær! Sigga, Sigurgeir og Þyrí fóru með mér. Frábær mynd fannst mér, gaman að sjá svona kenningar og gaman að sögunni.. mér brá samt þegar munkurinn réðst á Tom Hanks!... ég held að það fundu það allir í sætunum í kringum mig! Ég mæli með að sjá myndina!
Ég skutlaði svo Siggu heim, henni var svo kalt og var að sofna, en við hin fórum til Nödda í partý, Svenni bauð okkur inn.. vorum þar í smá stund, það var einn gaur sem heitir Binni, hann vann með mér á Grand Hóteli... hann sagði að ég væri eini gaurinn sem honum líkaði við á Grand Hóteli og hann gaf mér númerið sitt og sagði, næst þegar einhver ætlar að lemja þig, þá hringiru í mig...... bíddu... hvenar hef ég lent í slagsmálum? jú við Atla, og Huldu þegar við vorum yngri! Síðast þegar ég lenti í slag ef kannski fyrir svona 4-5 árum við Atla! Svenni flippaði svo þegar við fórum úr partýinu... var í einhverju Kung Fú skapi... og djókaði mikið með æluna! Við fórum niður Laugaveginn og á Pizza King, og bara heim.. Já, það er einhvað búið að gerast hjá mér!.. og mest byltingin er að ég þreif Bílinn!
Ţreyttur!
Svo kom Hulda í morgun og vakti mig kl 10! ég ætlaði ekki framúr! Ekki séns.. en hún hætti ekki og Sigga var byrjuð að hjálpa henni að koma mér framúr!.. ég kom mér framúr kl 11 eða 10:59 skutlaðist með Huldu til Rakelar, sóttum Viktoríu líka sem svo gleymdi símanum í bílnum, en það fattaðist ekki fyrr en kl 17:30. Þær fóru svo í sumarbústað eða einhvað!... Sigga vildi fara heim og skipta um föt, svo sóttum við Svenna og fórum á Red Chilli... ég og Svenni fengum okkur borgara... maður er bara enn saddur, minn borgari var 280 grömm... ahh.. hann var gómsætur! Sigga fékk sér tortillas! allir pretty much ennþá saddir! Við fórum svo í Kringluna, tékkuðum í Skífuna, Hagkaup, ég keypti einhvað dót svo ég get kannski rakað mig oftar því mér verður alltaf svo illt í húðinni þegar ég er búinn að raka mig, inngróin hár og einhvað kjaftæði! Svo fórum við í Símann og Sigga breytti yfir í að hafa mig sem símavin sinn. Svo fórum við út í Faxafen/Fákafen eða what ever og keypum okkur ís... tókum einn Grafara og út í 10-11 til "Úlla" fyrir útlendingur. Svo skutlaði ég Siggu og Svenna heim og hér er ég... svo er ég svo Þreyttur ég gæti bara sofnað, en svona er ég, fer ekki að sofa á daginn... bíð bara þar til í kvöld.. ef ég vaki frameftir þá þarf ég örugglega að eyða nokkrum hundraköllum í orkudrykki! Skrifa einhvað rugl seinna!
Malbikiđ!
Já bíddu, ég á eftir að setja tónlistina á!
Já, vá hvað er langt síðan ég hlustaði á Muse!..
Jæja, ég er tilbúinn núna!, kominn með Maryland kex, Sprite og Muse, góð blanda!
Það var svo sorglegt að fara frá Nóatúni, ég var ekkert tilbúinn að hætta þar! Dóri og Fríða sáu það alveg greinilega... en Hey, lítum á björtu hliðarnar, kannski kem ég aftur í haust, en það er samt bara kannski!
Ég mætti í malbikið í gærmorgun kl 7:30.. byrjaði að horfa á Ísland í Bítið og hlustaði á kallana tala saman, það er yfirleitt rosa skemmtilegt og mjög fyndið, en þótt þú trúir því eða ekki, þá er ég ekki brandarakall í bikinu! ónei, þeir eru ekki alveg með jafn fáranlegan húmor og ég.. kannski er ég bara svolítið feiminn við að koma húmornum út í vinnuni.. Ég tók svo skák við hann Sigga... það er sko einn kallinn... kúl gaur, en hann grautrústaði mér í skákinni... þannig Sigurgeir og fleiri Ármílingar sem tapið vanalega fyrir mér... ekki einusinni láta ykkur dreyma að tefla við fólk sem er svona gott í skák og hann er ekki einusinni Íslandsmeistari
Ég fékk pítu í kvöldmat og fór svo um kvöldið í fótbolta með Svenna, Pavoli, Jóni, Geira og Atla og nokkrum vinum hans.. ég svitnaði nóga andskoti mikið þar og fékk mér Coke eftirá... það var algjör snilld!
Ég kom heim kl 23:30 og tók til geislaspilara, var öruggur um að það var nóg batterí á honum og tók Stadium Arcadium og slappaði af og horfði á Jay Leno og sofnaði kl 0:30.. Svo vaknaði ég kl 5 í morgun tók einhvað meira til áður en ég fór í vinnuna, pabbi og Hulda áttu bæði að mæta kl 6 í vinnuna, en ég var sóttur, Mummi sótti mig. Við löggðum svo af stað upp í Búðardal, og malbika þar. Ég tók upp geislaspilarann og hlustaði á Dani California, þá stoppuðum við í sjoppu, ég stökk inn og keypti Sprite og kom aftur inn í bíl, en þá var geislaspilarinn batteríslaus! Helvítis drasl!! Átti að vera fullur!
En maður var svolítið hræddur um að koma ekki heim fyrr en einhvertíman eftir þrjú, en á föstudögum er svona "þrjú regla" og þá eiga yfirleitt allir að vera búnir að vinna.. það er ýkt nice! Við malbikuðum 350 tonn.. það er fínt, þetta var innkeyrsla og bílaplan við ný hús rétt fyrir utan Búðardal. Við fengum rúnnstykki með skinku og osti, kanilsnúð og Coke í plasti (og tappa) í hádegismat! Við kláruðum að malbika um 13 og þá fórum við í mat, það var einhvað nautagúllas eða what ever og kartöflumús, mjög gott, svo var grænmetissúpa líka. Ég var alveg pakksaddur á leiðinni heim, en svaf hana mest alla.. Svo var ég að tala við Atla núna áðan og þetta voru alveg ný batterí í geislaspilaranum! DRASL!
Svo vona ég að gera sem minnst í kvöld, ég er Þreyttur! BÆ!
