Auglýsing

Makeuplogg! Sorry for lack of blogging!

26. október 2006 klukkan 05:13
Sigurgeir skoraði á mig að blogga! Ég er ekkert búinn að blogga af viti í nokkurn tíma núna... Klukkan er nú ekki svo margt, en ég er þreyttur og með hausverk og nenni ekki í skólann á morgun! Þannig ég nenni varla að blogga.. en sjáum til hve langt ég kemst!....... Ef ég stoppa allt í einu, þá sofnaði ég ok? OK!

Jón átti afmæli 18 okt. Ég, Sigurgeir, Jón og Pavol fórum að fagna afmælisdeginum hans á Stælnum, horfðum svo á Litle Brittain hjá mér seinna um kvöldið og Sigurgeir var eini sem mætti með gjöf, þó ég hafði nú keypt CD handa honum... hafði óvart týnt gjöfinni 1-2 dögum áður...... hihihi

Bíllinn lifir, spurning hve lengi...... og hvort maður eyði monningum í að halda honum á lífi... Pabbi vill meina að þetta sér ekki hedpackningin, þá gæti verið þess virði að láta bílinn lifa í þó nokkra mánuði í viðbót!!

Ég keypti mér Football Manager 2007! Ohhh.... þvílíkur leikur! Dice Wars hvað? þessi er  sko algjör andskotans snilld... Elska leikinn! Vííí..... Eftirminnilegasta hjá mér það sem komið er í leiknum er að ég var 1-0 yfir Aston Villa í hálfleik og klúðraði leiknum 2-1 á mjög dramatískan og svekkjandi hátt!! :(

Alli (fuglinn minn) er vonandi farinn að gera gæfasri og skemmtilegri í nánustu framtíð, hann virðist vera hressari og er búinn að veita mér nokkra athygli síðustu daga..... nema hann hafi bara verið svangur... og er að biðja um mat.... Mér finns að hann ætti bara að fara að vinna og kaupa sér að borða sjálfur, í staðin fyrir að kúka út um allt, ég mig og í búið og skíta úr og vera frekur!! En hann er samt sætur og næstum því elskulegur.....I still love him! :P

Babbara.. hvað er nú þetta? Dagskrá vikunar.... ....... ég man ekki meira af auglýsingunni....

Afi átti afmæli í dag, varð 75 ára! ég skrapp með mömmu og pabba í kaffi í Sóleyjarima... það var ágætt að sjá fjölskylduna, gott að láta sjá sig og sjá aðra..

Ekki má gleyma að minnast á að Elsku Svenni okkar átti auðvitað líka afmæli 21 okt! Til hamingju með það ;)

Því miður féll Kúrva úr Vetrarbikarnum, sem er fótboltamótið í Ármúla... en þó er ég örugglega ekki falinn úr keppni, mér var boðið að koma yfir í lið Johnny sem varð efsta 3. sætaliðið í riðlakeppninni! Einn þurti að vinna og Elvar sem er í því liði spurði mig, og ég þáði það auðvitað! Þannig ég á þó mörguleika að komast áfram í keppninni!!! Hlæjandi  

Hey ef ég myndi ekki mæta á morgun í skólann, þá gæti ég sloppið við að gera fyrirlestur í sögu, það er kalt úti, ég gæti hangið í tölvunni....(Football Manager here I come!!!)..... frestað könnun í Frönsku, ég gæti sofið út.... svo er líka þunnt lag af snjó yfir götunum núna og það gæti verið hálka á morgun!

Ég þraukaði í gegnum þetta.... ég segji einhverjar ruglaðar fréttir á morgun ef ég fer ekki í skólann á morgun Hlæjandi

Nenni ekki

17. október 2006 klukkan 04:05

Hæbb, ég nenni ekki að blogga, ég er ekki í stuði til þess, læt vita seinna hvernig bílnum lýður.. sum ykkar vita það jú núþegar nokkurn vegin hvernig Bimmanum lýður, en ég vildi bara segja að ég er á lífi, Jón á afmæli á miðvikudaginn, ég blogga örugglega um það í næsta bloggi Bæ!

Bílavesen :(

10. október 2006 klukkan 04:24
  • 6 daga síðan síðasta blogg!
  • Á föstudaginn var Fótboltamót, Vetrarbikarinn
  • Fyrsti leikur 12-0 fyrir hinum, áttum ekki séns
  • Annar leikur: 2-0 í hálfleik en svekkjandi klaufaskapur að tapa 4-2
  • Þriðji og síðasti leikur: 4-1 fyrir okkur, nokkuð öruggt!
  • Vonandi komnir áfram, ekki hægt að segja um það núna
  • Föstudagskvöld: frekar leiðinlegt, gerði ekkert
  • Um miðnæti spjallaði ég við foreldra mína í um 3 tíma
  • Laugardag: Fór til Elvars, pöntuðum 2x pizzur og Coke og horfðum á Simpson og Weird Al. Geðveikt gaman!
  • Keyrði hjá einhverju frekar stóru slysi á Kringlumýrarbraut, þar sem kallinn var klipptur út úr jeppanum sínum en ég varð að snúa við því bíllinn var byrjaður að hitna!
  • Borðaði hjá Siggu, rosa góður matur sem Arnar grillaði fyrir okkur!
  • Fór á Beerfest með Siggu, Margréti og sænskri frænku Margrétar
  • Fín mynd
  • Svaf allan sunnudaginn, Sigga er enn fúl útaf því.
  • Bíllinn bilaði, dó á gatnamótunum fyrir neðan götuna mína! Veit ekki hvað er að, so don't ask!
  • Jón heimsótti okkur í skólann í dag! Það var skemmtilegt!
  • Kláraði Félagsfræðiritgerð fyrir 15 mín síðan!
  • Ég nenni ekki að blogga eins og þið sjáið kannski en ég mæli með leiknum Dice Wars: http://www.leikjanet.is/?gluggi=leikir_spila&leikur=829
  • Ég er farinn í Football Manager og hlusta á Weird Al Yankovic!

Til hamingju Mamma

03. október 2006 klukkan 01:52
Í dag á mamma gamla afmæli! Hún er bara 25, ekki deginum eldri enda fædd 1962!

Annars vaknaði ég í morgun kl 7:40, var mættur í skólann 8:20-25 því Sólrún átti að vera mætt í tíma kl 8:10, er samt ekki viss hvort hún mætti í tíma, ég hefði ekki gert það. En ég beið smá tíma eftir tíma. En áður en ég fór í sögu, sem var fyrsti tíminn minn í dag, þá var ég manaður að halda kjafti til 10 í kvöld. Gunnsa, kærasta Ingós manaði mig því ég næ ekki ennþá kettinum og ef það tækist myndi ég fá að raka hárið að hausnum hans Ingós, og það er nú ekki lítið!

Ég fór í sögutíma, það var þæginlegur tími, þurfti ekki að segja orð, það var videotími og við kláruðum að horfa á myndina Carla's Song, fín mynd finnst mér.

Ég kom úr tíma stoltur þegjandi, en ég vissi alveg að ég myndi ekki halda út til 10 í kvöld, ég fór í íslenskutíma og svaraði þegar ég var lesinn upp
Brosandi
Dagurinn gekk nokkuð vel fyrir sig, ég skutlaði Sólrúnu upp í Sjóvá kl 14:20 ég tjái mig ekki meira um það, nema fólk vilji endilega vita meira um það mál. Sótti Huldu í leiðinni í Versló svo hún gæti farið að finna nýtt bensínlok!!

Í enskutíma þá var ekkert gert, tíminn var auðveldari en flestir, Alex missti af tímanum, greyið! Því líkið var ekki þarna! Það var frábært að þurfa ekki að hlusta á líkið blaðra!! Yndislegt!! Ahhhh!

Hulda sótti mig... Hún hafði fundið nýtt bensínlok! Það er gott! Eins gott!

Ég og Hulda keyptum blóm handa mömmu áður en við komum heim! Mamma var mjög ánægð þegar hún kom heim 90 min seinna!

Svo varð ég að kaupa fullt af dóti í búrið hans Alla!!! Hann er svo einmanna greyjið, hann rífst bara við sjálfan sig! Nú keypti ég handa honum gervifugl sem hann getur goggað í og talað við eins og honum listir! Spurning að kalla gervifuglinn Gogga... Alli verður vonandi gæfari núna!! Hann spjallaði allavega við mig áðan þegar ég tók hann úr búrinu sínu!

Pabbi tók mig í Elkó, þegar ég kom heim, ég keypti mér Litle Brittain 3. Seríu á DVD!!! Hell Yeah!!! Ohh Yeah!! Svalur BEESTUR, ef ég má vitna í Pétur úr bikinu!! Jú, þá fann ég The Mask!! úff, það er langt síðan maður sá hana! Ég þarf að horfa á hana við fyrsta hanagal, ég meina tækifæri!! Svo fann ég auðvitað sígildu myndina Office Space!! Alveg gæðakaup í Elkó! AHH!! Elska þegar ég dekra við mig!... Sigga, your time is over, nú er tími til að dekra við sjálfan mig, og nóg af dekri!

Svo fórum við fjölskyldan á American Style Bíldshöfða! Settumst í U2 hornið! Mjög nice! Ég hitti Þórð Grétar, þið sem kannist við hann.. hann er ekki jafn hár í loftið núna... Hann hefur ekkert stækkað, bara allir hinir! haha! Jæja, ekkert gaman að þessu bless!

Vesen og leiđindi!

01. október 2006 klukkan 23:37
Í gærkvöldi horfðum við Sigurgeir og Jón á Clerks, frábær mynd, við hættum ekki að videoast strax, heldur horfðum á líka Gacy, mynd sem fjallar um einn mesta fjöldamorðingja Bandaríkjasögunnar.
Sigurgeir varð svo að fara því hann varð að opna 10-11 í morgun. Þá ætluðum við Jón að horfa aðeins á System of a Down tónleikana mína.. Þá hringdi pabbi og bað um að láta sækja sig, það átti ekkert að taka langann tíma, þannig ég og Jón skruppum.
Pavol hringdi og spurði hvort það væri hægt að sækja sig niður í bæ, ég sagðist koma eins fljótt og ég gæti. Ég fór alla leið í Grafarholt og sótti gamla fólkið. Kristján, bróðir mömmu fékk far heim. Pabbi vildi sýna okkur nýja hús Sigga og Áu. Stjáni hljóp þaðan heim, sem tók 2 min. Svo vildi til að fólkið sem bjó fyrir hliðina á nýja húsi Sigga og Áu, spurði hvort við gætum skutlað einum þeirra heim. Þá var það Siggi!! Ótrúlegt að það hitti þannig, En samt, það var erfitt að koma fulla kallinum út úr húsinu, við Jón og mamma biðum eftir að pabbi næði Sigga inn í bíl. Það tókst loksins og ég var búinn að tékka á hvort Pavol væri ekki enn á lífi og hann virtist vera það.
Ég náði loksins að keyra fólkið heim og sótti Pavol. Hann beið hjá Devito's, Hlemmi. Hann hafði ekki átt voða ánægjulegt kvöld. Hann sagði okkur Jóni söguna af því hvernig er að vera einn edrú í bænum á laugardagskvöldi. Ég skil hann mjög vel að honum leið ekki rosa vel, ég gaf honum gott knús áður en hann fór inn til sín.
Þá fórum við Jón bara heim að sofa.

Ég vaknaði kl 10 í morgun og sofnaði aftur.

Ég vaknaði svo kl 14, hringdi í Siggu og það var ekki svarað. Þá fékk ég mér bara í svanginn, ristabrauð með osti og marmelaði... mmmm!! Sigga hringdi til baka og ég sótti hana í Smáralind, þar sem hún hafði verið með móður sinni.

Ég og Sigga tékkuðum í Kringluna, gáðum hvort það væri hægt að fá stærri hring en þann sem ég gaf henni. Það hentaði svo best að hafa bara þann sem ég gaf henni. Þá kíktum við í Perluna, ég er bara fastagestur þar! Við keyptum bæði einhvað. Ég fékk mér m.a. Stadium Arcadium bokið, Sigga fær diskana mína. Svo langaði okkur að rifja upp Krít og fá okkur Crepes!!! MMMMMM! En það var ekki eins Crepes hjá þeim þarna í Perlunni, þannig við slepptum því!

Frá Perlunni fórum við á bensínstöð og það var ekkert bensínlok, Hulda týndi því í gærkvöldi og ætlar að redda öðru! Ég og Sigga fengum okkur svo Bæjarins Bestu PUlsur, með stóru U!! Svo skutlaði ég Siggu heim og bíð núna eftir kjúllabringum, Amma Sessa er komin í mat, Óli er með henni... Sjáumst, er farinn að heilsa upp á fólkið!


Kúkabrandarar

01. október 2006 klukkan 01:52
Ég verð að sýna öllum þessa frábæru brandara!! Margrét, takk fyrir linkinn! 

Draugadrjóli: Þú finnur hann koma út en það er enginn kúkur í klóinu þegar þú kíkir.

Hreinn skítur: Sá sem þú skítur og sérð í skálinni en það er ekkert á skeinipappírnum.

Eltikúkur: Þegar þú ert búin að kúka og búin að girða hálfa leið upp um þig og fattar að þú þarft að kúka meira.

Sprengja-æð-í-enninu hnulli: Sá sem þú þarft að hafa svo mikið fyrir að koma frá þér að þú færð næstum slag.

Dauðadrumbur: Svo ógeðslega stór að þú þorir ekki að sturta án þess að búta hann í sundur með blýanti.

Loftpressukúkur: Kemur með svo miklum látum að allir í kallfæri flissa.

Þynnkuskita: Kemur eftir fyllerí. Helsta einkenni hans eru bremsuförin í skálinni.

Maískúkur: Skýrir sig sjálfur. Ohh-ég-vildi-að-ég-gæti-kúkað kúkur: Þú þarft að kúka en situr bara á dollunni og fretar.

Mænustunguskítur: Þessi er svo brjálæðislega sársaukafullur að þú ert viss um að hann er á leiðinni út þversum.

Rasskinnableytuþrumari (Orkuþrumari): Fer út á svo miklum hraða að afturendinn á þér rennbleytist af klósettvatni.

Fljótandi drulla: Gulbrúnn vökvi frussast út um alla skál og rassgatið á þér með.

Háklassakúkur: Kúkur sem lyktar ekki.

Óvæntur kúkur: Þú ert ekki einu sinni á klóinu því þú hélst að þú þyrftir bara að prumpa en... úps, sparð.

Slórskítur: Kúkurinn losnar ekki frá rassgatinu á þér þó þú sért búin að kúka fyrr en þú hristir þig vel.

Atómsprengja: Þig svíður undan þessum á leiðinni út og svíður enn í marga klukkutíma á eftir.

Skopparakúku: Hörð spörð sem fara eins og skopparaboltar um alla skálina (kostur þarf lítið að skeina)

Mikilmennskukúkur: þú rembist og rembist og svo kemur eitt pínulítið lambasparð.

Íþróttaálfurinn: kemur ca. klukkutíma eftir leikfimina. Klippikúkur: sem er svo langur að þú þarft að kúka - klippa - kúka - klippa...

stolið héðan http://www.hafdishinriks.blogspot.com/

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Dingaling

Prófíll

  • Nafn: Skeggi
  • Netfang: skeggi9@hotmail.com
  • Stađur: Rvk
  • Atvinna: Háskólanemi hjá Háskóla Íslands
  • Hjúskaparstađa: Einstćđur
  • Um mig: Enginn en óflippađur Skeggi
  • Annađ: Ef ţađ er ekki gaman, ţá gerir mađur ţađ gaman

Leit

Leikir á netinu