Auglýsing

Deep Purple og Uriah Heep

29. maí 2007 klukkan 18:53
Helgin var róleg og góð!!
Á laugargadinn ætlaði ég ekki að gera neitt. Var með eitthverskonar nefbólgu og mér fannst hún mjög furðuleg. Ég sótti miða með pabba á Deep Purple og Uriah Heep. Kíkti á Arnald í Hagkaupum, Kringlunni. Um kvöldið fór ég í grill til Ástu með mömmu. Áa kom líka, Siggi kom svo með Tedda litla en Siggi stoppaði stutt og fór aftur. Maður mætti sko um 6 og ætlaði að vera til um 9-10. Rúmlega hálf 9 hringdi Arnaldur og var með auka miða á Pirates of the Caribbean en ég hafnaði frábæru boði og hélt áfram að vera hjá Ástu (ég fer kannski bara á hana um helgina ef ég finn tíma eða í næstu viku). Ég skutlaði Áu og strákunum hennar heim á hennar bíl, hef ekki keyrt Ford Mondeo síðan ég tók bílprófið! Svo kom ég aftur til Ástu og við mamma vorum þar til 3:30. Alltof lengi, en það var ýkt nice!

Á sunnudaginn var hápunkturinn Uriah Heep og Deep Purple!! Það var eina sem var ekki svo rólegt! Ég hef aldrei hlustað mikið á þessar hljómsveitir, en Uriah Heep voru fyrri á svið og spiluðu gleðitóna í eyrun og það var hreint út sagt geggjað!! Í hléinu, þegar Uriah Heep voru búnir og Deep Purple voru eftir, þá fór önnur linsan að böggast og ég nuddaði og var að deyja í auganu, svo var ég alveg viss að ég hafði misst linsuna og hún týnst því ég sá alveg skýrt með öðru auganu og allt í móðu með hinu í nokkrar mínútur! Svo kom í ljós að linsan var þarna ennþá og hætt að pirra mig og Deep Purlpe byrjuðu. Mér fannst þeir ekki toppa Uriah Heep í fyrstu lögunum, en svo gerðist eitthvað hjá þeim og þeir áttu höllina! Stemningin var allsvaðaleg og ég ætla ekki að gera upp á milli hljómsveitanna, þær voru báðar þroskaheftar!!
Eftir tónleikana sagði maður þetta gott og fór heim.
Andri hefur víst muun skemmtilegri sögu að segja, skoðið síðuna hans á næstunni þegar hann er búinn að segja sín töfraorð þar!

Mánudagur: Annar í Hvítasunnu. Ég byrjaði að hjálpa pabba uppí húsi. Svo sturta, sem var orðin langþráð, tónleikarnir voru sko ekki svitalausir! Svo kíkti ég til Ívars Atla, með nokkra CD's og sýndi honum og svona. Hann varð mjög sáttur býst ég við!! Svo fórum við Ívar og Siggi og Birna í smá fótbolta og þau voru öll mikklu betri en ég, enda framtíðar stjörnur hér á ferð!
Um kvöldið tók ég rispu í Football Manager og vann deildina en klúðraði úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu gegn Bayern München 3-2 sem var mjöög svekkjandi því ég komst 2x yfir í leiknum.

Svo var mætt í vinnu í dag, í síðustu viku var yndislegt haglél og snjókoma og lúxus, nú var of slæmt verður til að vera úti, þannig við fórum að malbika inni í sólinni. Íþróttahöllin þarna í Kópavogi sem Eiður Smári og Arnór Guðjónsen eru að byggja, já við vorum þar. Svo eftir hádegi var bara spilað og hlaðað batteríin!

Tjörudýrið

24. maí 2007 klukkan 20:02
OHH, hata þess tölvu. Jæja, bráðum kaupi ég mér nýja!!

Maður verður að fá sér einkaritara! Maður nennir ekkert að skrifa lengur eftir vinnu!!

Á mánudaginn vorum við að malbika göngustíg við Sæbrautina! Það varð sögulegt þegar snjókoma byrjaði og haglél!! Það gerðist í fyrsta sinn í bikinu, þegar ég hef verið að vinna. Það var svo fínt veður á föstudaginn að maður hélt að sumarið væri komið!! En nei.... nú fór maður bara að vera hræddur um að fá jólabónusinn snemma!!
Ég og Sigurgeir fórum svo í sund í Suðurbæjarlauginni, Hfj. og það var ekki langt. Við vorum nýkomnir í laugina og Pavol sýndi sig líka! Nei, ekki til að skoða typpin okkar, heldur að heilsa upp á okkur í suni, en ég hélt að hann ætlaði að taka myndir af okkur, en hann var með myndavélina.. en ég man ekki eftir að hann tók nokkra mynd. Ég og Sigurgeir tókum nokkrar ferðir og það var nú erfiðara en ég hélt að taka sundið! Við vorum bara uppgefnir. Svo var potturinn í smá stund áður en maður fór uppúr, en sundlaugin lokaði fyrr en mig grunaði. Klukkan var 21:30 þegar okkur var hent uppúr, ég hélt að sundlaugar væru opnar klukkutíma lengur, eða er það bara rugl í mér?

Þriðjudagurinn varð líka svolítið sögulegur þegar ég fór í vinnuna fyrir Jón, en hann var í fríi úr Álverinu Grundartanga.. en akkúrat þá fer ég að malbika plan það fyrir utan, unnið var frameftir og við komum við á KFC Mosó á leiðinni heim, minn borgari var með stærstu bringu sem ég hef fengið, ég tók 3 bita af kjúllanum áður en ég komst að borgaranum sjálfum!!
Miðvikudagurinn var á sama stað og enginn Jón, nema Jón í bikinu. En það er ekki Wonderwoman-Jón. Þá var mikið meiri vinna! Það var mikið um holufyllingar og dæmi, ég varð alveg búinn eftir daginn og fór í bað eftir vinnu, örugglega í fyrsta sinn á ævinni sem ég hef farið alveg sjálfviljugur í bað! Því ég er ekki mikill bað-kall.. en baðið var gott og ég var t.d. ekki lengur aumur í bakinu af vinnu (ekki eftir vinnu, því þá væri ég að skemma bakið, þetta var ekki þannig). Þá horfði maður á leikinn!!
HVAÐA LEIK?? AC Milan - Liverpool, Úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu!! Ertu búin/n að búa á kassa eða???? Jæja, ég var sko ekki sáttur, þó það var alveg barátta í leiknum, en liðin sóttu ekki eins og þetta væri mikilvægur leikur. AC Milan unnu 2-1 og Inzhagi (2) og Kuyt með mörkin.
Eftir leikinn fór ég með Pavol og Svenna í einspark, sem var fínt fyrir utan fyrsta skotið sem fór í hálsinn á Pavoli.... ég gerði það ekki, það var Svenni, í alvöru! Annars voru nokkrir flottari taktar þarna á ferða en voru sýndir í leiknum, t.d. eitt markið sem Svenni skaut yfir mig og inn, ég kann ekki að lýsa því í orðum, hérna sjáið hugboðið bara!! Alveg stórglæsislegt mark!

Í dag fékk ég stöðuhækkun! Beggi spurði mig hvort ég vildi ekki sprauta tjörunni, það eru nokkrir extra þúsund kallar á mánuði og ég tók það bara að mér og ég er sáttur. Annars akkúrat þá tókum við innkeyrslu hjá Björgun ehf, sem er sand/grjótnáms fyrirtæki, að ég held... allavega virtist það vera.
Eftir hádegi var farið í Hafnarfjörðinn, í nýja hverfið sem er verið að byggja, milli Ásbergsins (held ég) og Setbergsins, 49 tonna göngustígur, og þar var djöfulli kalt!! Ekki bætti haglélið! Hreinn unaður!

Annars er ég búinn að vera á Football Manager flippi síðustu daga!! Ég fór í leikinn í fyrsta sinn um daginn síðan 2. Feb. og þá var stýri ég Arsenal, vann deildina á síðasta leiktímabili, en þegar ég byrjaði þá voru 4 leikir búnir á þessu leiktímabili og ég sá að það sem ég var að gera var ekki að gera sig því ég var í 18. sæti. Ég hand valdi allt liðið (lét ekki aðstoðarmanninn velja liðið) og hef gert það síðan! Ég er nú búinn með 24 leiki og með 8 stiga forskot á deildina! Það kalla ég nú ekki slæman árangur!! Ég er líka enn með í Evrópukeppninnni, er í 8 liða úrslitum og á að spila gegn Villareal! Geggjað!

Annars voru 41,6% af Newcastle keypt óvænt í gær. Mike Ashley, 25. ríkasti maður Bretlands var þar á ferðinni. Þá spyr maður sig hvað er framhaldið??

Nógu langt fyrir ykkur? Ég er sáttur í bili, takk fyrir mig!

P.S. Þakka kveðjurnar! og Ert þú 2000-asti að heimsækja síðuna?

1. árs!!!

21. maí 2007 klukkan 00:01
Já!! Síðan er í dag eins árs!! Íha! Á liðnu ári hef ég gert margt og hægðir og lægðir hafa verið á síðunni... og gulltímabilið er búið að vera í gangi í rúma þrjá mánuði og fleira fólk kemur að skoða síðuna í hverjum mánuði!

Látum næsta árið verða enn betra og síðan berður orðin enn betri eftir ár!

Pathfinder

20. maí 2007 klukkan 22:59
Nýr flokkur hérna. Tilgangurinn með honum er að koma á framfæri skoðunum mínum á kvikmyndum sér ég er nýbúinn að sjá.

Allavega var ég á Pavolfinder með Pavol.. nei meina Pathfinder Ullandi
Myndin var mjög fín fannst mér en þó vantaði svo margt til að fylla í eyðurnar. Aðal gaurinn var þarna í miðju stríði og hafði falið sig eitthversstaðar en allir víkingarnir voru að drepa indjánana. Svo var gaurinn skilinn eftir en indjánakelling kom og fann hann og tók hann að sér, en hann var af víkingaætt.
15 árum seinna spurðist aftur til víkinganna og þeir jörðuðu hina fjölskyldu hans líka. Þá varð hann aðeins í hefndarhug og vildi ekkert annað en drepa eins marga víkinga og hann gat.

Víkingarnir töluðu mjög óskýra íslensku, og það var gaman að hlægja að því, sumir inn á milli töluðu rosa skýra íslensku og var líka gaman að hlægja að því.
Ég skemmti mér ágætlega, þó svo kolröng mynd af víkingum var tekin upp, en ég gef myndinni 2 stjörnur af 5.

Endilega commentið hvernig ykkur finnst umfjöllunin, finnst ykkur ég segja of mikið frá myndinni? Hvernig get ég gert betur?

Ömmudagur

20. maí 2007 klukkan 00:46
Jæja, nú hef ég ekki mikið að gera og er að starta Football Manager í fyrsta sinn síðan 2. feb. á þessu ári.

Annars vaknaði ég eitthvað fyrir 2 og sá Chelsea - Man. Utd. sem spiluðu úrslitaleik FA bikarsins. En það var ekki mikið um færi þó var þetta góð miðjubarátta í leiknum en eina mark leiksins skoraði Drogba á 116. mín. í framleggingu.

Annars er þetta búið að vera ömmudagur hjá mér. Ég fór í 76 ára afmæli til ömmu Siggu og við, mamma og pabbi stöldruðum þar við í smá tíma og ég spjallaði mikið við Ívar Atla fræna minn sem fermdist fyrir stuttu.
Svo lá leiðin til Selfoss, en Óli kærasti ömmu Sessu, var að flytja þar á milli húsa. Þar var mataboð og svo kökur. Ég varð bara svo saddur að ég hafði ekki lyst á kökum. Annars var bara spjallað við fólkið og ég keyrði heim.

Annars hef ég lítið að segja. Nema það er fertugur kall að spila Bubbles í vinnuni hans Jóns og honum finnst það fyndið.
...uuuuubæ

Könnun: Hvaða flokk er skemmtilegast að lesa?

18. maí 2007 klukkan 21:33

Hvaða flokk er skemmtilegast að lesa?

Almennt ( 20% / 2 atkvæði ) Sögur ( 0% / 0 atkvæði ) Tónlist ( 30% / 3 atkvæði ) Fótbolti ( 0% / 0 atkvæði ) Pælingar/Steik ( 40% / 4 atkvæði ) Útlönd ( 10% / 1 atkvæði )
Tónlist????? Hver svaraði tónlist?? Svo spurningin er: Hvaða flokk er skemmtilegast að lesa!! Ég efast um að EINA tónlistar-"bolggið-ritið" var svo svakalega skemmtilegt að fólk nenni að lesa það oft.
Svo hvað með sögurnar?? Eru þær ekkert skemmtilegar?

Kvörtun

18. maí 2007 klukkan 16:42
Þakka öll tvö commentin sem ég fékk frá ykkur amk 15 heimsóknir og ég efast um að aðeins Lambi og Anna hafa farið í margar mismunandi tölvur til að hækka upp heimsóknateljarann.
Já ég er að lýsa yfir óánægju yfir slæmum lesendum sem geta ekki einusinni sagt sínar skoðanir einusinni þegar maður virkilega biður um það! Ég meina, þetta tekur 1-2 mín: klikka á athugasemdir, merkja, stimpla inn staðfestingakóða og skrifa: Kúl, mér lýst vel á þetta. eða eitthvað annað!

Vilt þú að ég hætti að skrifa útaf lélegum commenturum? Það liggur við að maður nenni þessu ekki lengur útaf því.

Annars sótti ég einkunnir! Víí, ég er hundfúll yfir þeim!! Ég þarf helst að taka smá í fjarnámi í sumar til að setja ekki pressu á mig næstu önn! Allavega vantar mig aðeins 19 einungar til að útskrifast.

Hey, veistu hve gott er að vera í sólbaði á launum síðasta klukkutímann?? Ég veit það.. það er nice!

Commenta svo!! Það er ekki svo erfitt!

Spurningakeppni

16. maí 2007 klukkan 00:45
Það sem ég elska við bikið er að ég næ að hugsa um svo margt sem ég næ ekkert að hugsa um þegar ég flippa með félögunum, eða í skólanum eða bara þegar ég er að spila í tölvunni.

Ég var að reyna að rifla upp Úkraínu-lagið í Eurovision í dag og það heppnaðist ágætlega, en ég fattaði að því það er oft svo léleg þátttaka í commentum að það gæti verið sniðugt að hafa spurningakeppni!
Kannski 2-3 lög, eitt sem ætti að vera nokkuð auðvelt, annað erfiðar og kannski eitt í viðbót sem ætti að vera þó nokkuð erfitt... Bíddu ég á eftir að útskýra meira.
Sko, þá myndi ég setja textann við laginu/lögunum og flokka stigafjöldann eftir erfiðleika. Kannski eins og Wonderwall - Oasis væri eitt stig og I'll sue ya -Weird Al væri 3 stig en þá væri textinn við lagið en ekki svarið við spurningunni Ullandi

Galli: Nei, ekki eins og íþróttagalli, heldur galli eða villa.
Sko með svörin, þá ef einn gerir rétt þá sjá allir rétta svarið eitthverntíman og geta sagt rétta svarið ef það er komið. En þá er spurningin hvort það eigi þá senda mér svörin á e-mail eða þess vegna þeir sem eiga síðu hér á bloggar að senda svar í gegnum kerfið svo að aðrir séu ekki að stela svörunum.

Allavega hvað finnst þér? Þá er ég að spyrja þig líka, ekki bara Önnu? Comment please!

Linsur

14. maí 2007 klukkan 18:29
Hæ, ég fór fyrr úr vinnuni í dag. Jújú,  við vorum að bika í nýju hverfi í Hfj., fyrir ofan Setbergið. Ég fékk að fara aðeins fyrr til að geta farið í linsukennslu. Það var svaka fjör ef manni finnst gaman að pota í augun á sér. Ég er að segja að ég hef skemmt mér betur.  Ég á þó nokkuð erfitt með að troða fingrunum í augun á mér þannig að það tók smá tíma að kenna mér þetta. Ég er samt nýkominn heim og ég er enn að gá hvort þetta sé ekki að virka.. þetta virkar, en er að venjast.
Ég ætla ekki að segja mikið í dag.

SÉ ykkur seinna

West Ham uppi!

14. maí 2007 klukkan 01:07
Helgin.
Já sko hún var þannig að ég kaus rétt (hvað er rétt?) og við, Jón og Sigurgeir fórum í sund saman og syntum 10 ferðir og fórum í rennibrautina.. vííííí...... og í heita pottinn. Það verður þá þannig í sumar að við tökum vel valda daga og reynum að fara reglulega í sund!

Ok, ég eyddi laugardagskveldinu í rómantíkinni hjá Sigurgeiri! Hann var einn heima og við fengum okkur pizzu frá Pizzunni Hfj. (Sorry Jón) og horfðum á Eurovision. Moldova lagið var besta lagið sem ég heyrði, en finnska virtist veraeitthvað varið í, en ég hef enn ekki heyrt það. Úkraínska lagið var órtúlega fyndið, en lagið ómögulegt. Ég hélt samt með því, bara útaf dansinum. Frakkar og tvíburi Bartez í franska landsliðinu í knattspyrnu áttu frábært show, þeir voru þeir sem ég hélt virkilega með því þeir voru snillingar, en þeir voru ekki með í baráttunni, þannig það var ekkert gaman að fylgjast með stigagjöfinni og horfa á botninn. Svíar voru gay.

Okay, þegar það var búið að klippa á Eurovision og kostningavakan komin í loftið þá settum við PS2 af stað og spiluðum Cartoon Network Racing. Geðveikur leikur sem maður er í kappakstri við aðrar persónur frá Cartoon Network, eins og t.d. Johnny Bravo, Powerpuff Girls og Cow & Chicken. Áður en við fórum með Svenna í bæinn þá settum við Dynasty Warriors í tölvuna og djöfull var skemmt sér!

Sigurgeir koma með okkur Svenna í fyrsta sinn í bæinn. Fyrst fórum við á Celtic Cross og það var sko staðurinn til að vera á. Ég hitti Elvar úr FÁ, ekki Edda - eða vin Orra, heldur hinn, ljóshærða sem er að útskrifast! Við Svenni plötuðum Sigurgeir á Hverfisbarinn en Svenni gat sjálfur ekki verið þar inni í 3 mínútur og vorum strax farnir. Vorum nú ekki lengi inná neinum stað, fyrr en við fórum á stað sem ég hafði ekki tekið eftir áður, hinumegin við götuna við Rex og hliðina á Club Óðal. Þar var gella sem var með mér í heimspeki en við fylgdumst aðeins með kostningavökunni og heyrðum Einar Ágúst spila. Svo var bara haldið heim á leið.

Meira?
Ég fór á fætur um 13 og ætlaði að horfa á lokaumferð ensku deildarinnar. En Svenni fékk mig aðeins í tuðruspark og við komum aftur til mín þegar hálftími var eftir af leikjunum. Ég varð sko ekki ósáttur við lokatölur. Newcastle spilaði við Watford en leikurinn skipti engu máli og endaði 1-1.
Lokastaða deildarinnar er tekin af mbl.is
1.Man. Utd38285583:2789
2.Chelsea382411364:2483
3.Liverpool382081057:2768
4.Arsenal381911863:3568
5.Tottenham381791257:5460
6.Everton3815131052:3658
7.Bolton381681447:5256
8.Reading381671552:4755
9.Portsmouth3814121245:4254
10.Blackburn381571652:5452
11.Aston Villa3811171043:4150
12.Middlesbro3812101644:4946
13.Newcastle3811101738:4743
14.Man. City381191829:4442
15.West Ham381252135:5941
16.Fulham388151538:6039
17.Wigan381082037:5938
18.Sheff. Utd381082032:5538
19.Charlton388102034:6034
20.Watford385132029:5928

West Ham vann Man Utd. 1-0 og tryggðu sér áframhaldandi sæti í deildinni. Wigan og Sheffield Utd. var leikurinn sem skipti öllu máli. Fyrir umferðina var Wigan með 35 stig og varð að vinna til að geta átt möguleika á að halda sér í deildinni en Sheffield voru með 38 stig. Ef West Ham myndi tapa og Wigan vinna þá hefði West Ham fallið á markatölu. Wigan vann Sheffield 2-1 og komust upp yfir þá með betri markatölu eða einu marki betra en Sheffild Utd.
Ef þú skilur hvað ég er að segja þá er það gott, annars þá hefuru alveg jafn lítið vit á boltanum eins og þegar þú byrjaðir að lesa þetta.

Aðal fréttin er samt að Sam Allradyce (eða eins og pabbi vill kalla hann: Sammi sopi) skrifaði undi hjá Newcastle í dag og mun stýra Newcastle á næstu leiktíð og ég býst við baráttu um Evrópusæti!! Ég get ekki beðið núna!

Annars er lítið að frétta! Þetta er orðið frekar mikið þannig ég ætla að leyfa ykkur að gera eitthvað við líf ykkar!
Vinna í fyrramálið! Rock on!

Með hægri hendina á kafi í pussunni sinni

12. maí 2007 klukkan 03:17
Já, fyrirsögnin er setning dagsins. Hún var sögð í dag rétt áður en ég slapp úr vinnuni. Ég var þó nokkuð þreyttur í vinnuni í dag og var frekar illt í höndunum því ég hafði líklegast eitthvað haldið vitlaust á skóflunni fyrsta daginn og svo var ég með harðsperrur í bakinu: not so very cool.

Ég hitti Sigurgeir, Pavol og Jón eftir vinnu og tékkaði CD-lagersölunni í Fellsmúlanum. Blankur námsmaður eins og ég hef ekki efni á að kaupa eðal diska, þannig ég hélt buddunni bara í vasanum.

Sigurgeir var svo eitthvað að pæla hvort við ættum að éta eitthvað saman, en ég var ekki búinn að afboða mig í mat og veskið leyfði það ekki heldur, þannig ég fór heim að éta. Þegar ég var nýkominn inn um hálf sjö kallaði Hulda í mig og spurði mig hvað ég ætlaði að éta í kvöld. Það gat aðeins þýtt að það yrði ekki kvöldmatur!
Heppinn var ég þegar Svenni hringdi stuttu seinna og spurði hvort ég væri til að fara eitthvað með sér. Ég, Jón og Svenni fórum þá saman á Hlölla og kíktum í Skífuna Laugarvegi.

Upprunalega var alltaf að kíkja í bíó á Blades og Glory. Þess vegna sótti ég Pavol og Sigurgeir og við fórum á frábæra kvikmynd í Álfabakkanum! Ég hló eins og vitleysingur! En ég vil ekki skemma myndina og leyfi ykkur að njóta hennar þegar þið sjáið hana!

Á morgun er planið að prakkarast smá sem þið fáið kannski að vita eitthverntíman ef það gerist eitthvað frásagnavert. Svo á að skreppa í sund, aldrei þessu vant og kjósa.

Ég nenni samt ekki að vera að tjá mig mikið og ætla bara að sjá hvað rúmið hefur upp á að bjóða. Ég spyr bara: hvar eru gellurnar þegar maður þarf á þeim að halda? Ég er farinn að hlýja rykinu!

Byrjaður í bikinu

11. maí 2007 klukkan 00:38

Hæ, ég hef ekki mikið fengið að fara í tölvuna síðustu daga. Prófin eru búin og ég er núna búinn að ná 11 einingum. Ég náði Heimspeki, Sögu og Frönsku; það eru 3 einingar hver og svo fæ ég sitt hvora eininguna fyrir Íþróttir og mætingu. Þá á ég eftir að fá úr Ensku, Íslensku og Stærðfræði.
*Spraut* *Spraut* Ahh, fékk úr því!!
Nei sorry, ég fæ ekki einkunnir fyrr en á föstudaginn í næstu viku.

Annars þá kláraði ég síðasta prófið mitt á þriðjudaginn. Ég og Arnaldur héldum upp á það með því að fara á American Style. Eftir Stælinn höfðum við ekkert að gera þannig við fundum okkur eitthvað að gera og fórum til mín og horfðum á UHF með Weird Al. Svo hringdi Svenni og við fórum þrír að sparka smá í fótbolta!
Arnaldur, þú ert ágætur! Sko.. ég hef aldrei á ævinni séð mann sem er ekkert frábær í fótbolta og er jafnfættur!! Voða furðulegt! Annars þá skemmti ég mér mikið.

Svo byrjaði ég í malbikinu í morgun. Svo þetta er vinnustaður til að vera á! Húmorinn er alveg einstakur og alveg frábær! Ég ætla pottþétt að smella nokkrum gullmolum hérna í sumar!

Ég stillti vekjaraklukkuna á 6:40 en rankaði ekki við mér fyrr en um leið og Sail to the Moon með Ampop byrjaði í útvarpinu, þá var klukkan orðin 7:01. Það nægði til að éta og taka mig til og koma mér niður á stöð kl. 7:30, þó ég mætti örfáum skitnum mínútum of seint.
Það var ekki mikið að gerast fyrstu tímana í vinnuni, það er komin ný malbikunarstöð, þannig við höfum tvær og þær voru báðar bilaðar.
Við löggðum af stað á Selfoss kl um 10.
Mér var einusinni kennt í vinnunni að maður ætti að muna hrósin sem maður fær í bikinu því þau koma ekki á hverjum degi, og viti menn.. ég fékk nú fleiri en eitt hrós.. og frá fleiri en einum.. og það fyrsta daginn... fjórða sumarið.
Allavega var fyrsti dagurinn mjög góður! Byrjaði kl 7:30 og var búinn 22:00
En ég sem ætlaði að segja svo mikið og svo þegar ég er búinn að reyna að segja eitthva hér núna í 2 tíma, en því margir hafa spjallað við mig á msn, þá er sumt farið og kemur kannski aftur seinna þegar það er orðið of seint.

Ég vil líka bæta við að það er ekkert pottþétt að ég verð súper duglegur að skrifa í sumar því bikið tekur mikla vinnu frá manni.. en ég ætla að gera mitt besta!

Sjáumst! Hurða ykkur seinna!

Roeder Rokinn!

06. maí 2007 klukkan 23:36

Kraftaverk gerast!! Glen Roeder knattspyrnustjóri Newcastle sagði upp starfinu sínu í dag!
Sam Allardyce sem sagði upps tafi sínu hjá Bolton fyrr í vikunni er sterklega orðaður við Newcastle! Sammi Sopi, eins og pabbi kýsa að kalla hann, hefur verið í uppáhaldi hjá mér upp á síðkastið og hann hefur akkúrat verið á óskalistanum til að taka við Newcastle! Jæja, allt að gerast! Ef þetta fer svona þá get égekki beðið eftir næstu leiktíð!! Ég er svo spenntur!

Newcastle Nördinn out!

Congratz Man U.

06. maí 2007 klukkan 18:16
Vá hvað ég er pirraður!! Ég var næstum búinn með ritið og lokaði óvart glugganum.

Ok, ég ætla að koma þessu frá mér. Þannig Taka 2.

Manchester United Englandsmeistarar!
Arsenal tóku á móti Chelsea í dag. Chelsea varð að vinna til að eiga möguleika á titlinum. Arsenal komust yfir á 43. mín. eftir að þeir fengu vítaspyrnu og leikmanni Chelsea vikið útaf. Chelsea jöfnuðu eftir að Arsenal voru búnir að spila mun betur í seinni hálfleik og slógu Arsenal útaf laginu. Arsenal virtist ekki finna taktinn eftir mark Chelsea og Joe Cole skoraði glæsilegt mark en það var dæmt af vegna rangstöðu. Leikurinn endaði 1-1 og má segja að var bara sanngjant!

Manchester United og Chelsea eiga tvo leiki eftir, m.a. munu liðin spila gegn hvoru öðru næsta miðvikudag. En til að Chelsea átti að eiga möuleika á titlinum urðu þeir að vinna Arsenal í dag, Man. Utd. á miðvikud. og svo líka Everton í lokaumferðinni og Manchester hefðu þá líka þurft að tapa West Ham í lokaumferðinni. En nú eru 7 stig sem skilja Man. Utd. og Chelsea en aðeins 6 stig eftir í pottinum.

Liverpool og Arsenal eru í baráttunni um 3. sætið en þau eru jöfn að stigum og Liverpool með örlítið betra markahlutfall. Liverpool mun spila við Chartlon í lokaumferðinni, næstkomandi sunnudag, en þeir eru í 19. sæti en eiga einn leik inni. Portsmouth verða svo andstæðinagar Skyttanna í lokaumferðinni.

Baráttan um Evrópusætið er mjög spennandi en ég þori ekki að tjá mig mikið um það því ég man ekki hvort 7. eða 8. sætið sé síðasta sætið sem tryggir liðinu í UEFA-keppnina. En, Bolton Reading, Portsmouth og Tottenham eru í svaka baráttu, en það eru aðeins tvö stig sem skilja liðin fyrir lokaumferðina.

Botnbaráttan er ekki barátta, þar er stríð!
Ég smelli upp töflunni af botnliðunum hérna:
15.Fulham378151437:5739
16.Sheff. Utd371081931:5338
17.West Ham371152134:5938
18.Wigan37982035:5835
19.Charlton36891932:5633
20.Watford375122028:5827
Heimild: mbl.is/mm/enski
Sko, Watford eru löngufallnir, end of story.
Charlton eiga leik inni gegn Tottenham sem verður spilaður á morgun. Með sigri þar komast þeir í 36 stig og ef það gerist, þá eiga Fulham möguleika á að falla, annars ekki. Charlton spila svo gegn Liverpool í lokaleiknum og með sigri úr báðum leikjunum eru góðar líkur á að bjarga sér frá falli. Hins vegar ef þeir vinna ekki báða leikina falla þeir.
Wigan töpuðu mikilvægum leik um helgina og sitja nú þremur stigum á eftir Sheffield Utd. og West Ham. En Wigan heimsækja Sheffield Utd. næstu helgi og verða að komast þaðan með þrjú stig annars eru þeir fallnir.
West Ham eiga eftir að mæta meistunum, Manchester United.  Með jafntefli halda þeir sér í deidinni.
Öll botnliðin eru samt að reyna að fella West Ham fyrir ólögleg leikmannakaup í byrjun leiktíðarinnar en um daginn fékk West Ham 5,5 milljón punda sekt. En ég vona innilega að West Ham nái að verjast og mun ná að halda sér í deildinni, annars hef ég trú á þeim að komast aftur upp að ári liðnu ef þeir verða sendir niður.

Mitt lið er samt ekki að standa sig! Þeir töpuðu aftur um helgina. Þeir sitja í 13. sæti. Þeir hafa unnið 2 leiki af síðustu 10 í deildinni. Það var gegn Sheffield Utd. og Liverpool. En síðasti leikurinn verður gegn Watford og það eiga að vera örugg 3 stig, en botnliðið vann Reading um helgina.
Annars mun ég ekki sakna Roeders sem stjóra Newcastle ef hann fer í sumar.

Elvar ég mátti vita að þú værir Eddi! Ullandi

Allavega, þá verður örugglega annarð fótboltarit í næstu viku!

Í kvöld er planið að spila fótbolta með Atla Rafni (bróa) og félögum hans! Jón verður að vinna og Pavol veikur, búinn að vera með örfáar kommur síðan á miðvikudaginn. Eitthver annar að sannfær hann um að hann hafi gott af því að fara út? Já og svo er Svenni Háskóladrengurinn að læra fyrir próf.

Smell ya later!

Ókunnugi Eddi

06. maí 2007 klukkan 01:59
Hæ, áður en ég byrja, þá vil ég bjóða Edda velkominn í álesendahópinn, hver sem hann er, en ég er mjög ánægður að eitthver nennti að lesa það sem ég hafði að segja um fótboltann og hefur vit á því sem ég er að skrifa um.
Annars væri ég alveg til að vera í bandi við þig Eddi áður en ég fer á Players með þér. I don't date strangers! Þá getur alveg addað mér á msn, ef ég er leiðinlegur, þá veistu alveg að þú getur alltaf blockað mig! Glottandi

Allavega þá er gaman að kynnast þér Eddi, en því það eru engar kinnar hérna, þá er gaman að tengjast þér!.. Grr..

Hey, ég hef ekkert að segja!
Ég nenni ekki að tala um eyrnapinna, þannig ég ætla bara að pæla í eitthverju!

Pælið í að vera Knocked-up 40 year old virgin!!
Já, þið sáuð kannski í gegnum þetta... Það er mynd sem heitir Knockedup sem er frá þeim sem gerðu 40 year old virgin.
UUU.... Hey áður en ég fór að sofa í gærnótt, þá var ég búinn að vaka í um 38 tíma og sofa í aðeins 3.
Það er ekkert til að monta sig af, en ég varð ágætlega steiktur og það er alltaf gaman að því! Annars fór ég til Nödda með Jóni og Svenna um helgina og sá preview af nýju videoi frá honum. Ég verð bráðum að gefa mér tíma og setja videoin hans á síðuna. Þau eru steikt og algjörlega sér í flokki!

Takk fyrir mig, Eddi þessi færsla er tileinkuð þér. Þó ég veit ekkert hver þú ert!

Könnun: Ég er..

03. maí 2007 klukkan 22:32

Þótt ótrúlegt sé þá heimsótti alveg upp í 20 manns síðuna mína nokkra daga í röð og aðeins 10 svöruðu könnunni og könnunin var uppi í 3 vikur. Ég sem hélt að ég þekkti fleiri sem nota gleraugu, en varð greinilega fyrir vonbrigðum að fleiri tóku ekki þátt í könnunni. Verið dugleg að svara næstu könnun!

Ég er..
Gleraugnaglámur ( 40% / 4 atkvæði )

Ógleraugnaglámur ( 60% / 6 atkvæði )

26

03. maí 2007 klukkan 16:16

Í gær fórum við Jón og Svenni að sparka aðeins bolta. Fórum á Leiknisvöllinn í Fellahverfinu. Þar voru 4 litlir strákar sem buðu í okkur. Þetta voru strákar sem voru í 5-6 bekk. Jón er 19 og ég og Svenni 21, þannig það var smá stærðarmunur. Við lékum okkur aðeins að þeim. Völlurinn var frekar stór fyrir 7 leikmenn til að spila á en við byrjuðum að baka þetta og fljótlega komnir í 4-0. Einn bættist við hjá þeim. Við vorum eitthva búnir að slaka á og allt í einu staðan orðin 5-4 fyrir okkur. Við þurftum að fara að gefa smá meira í en hitt liðið var alltaf að stækka. Næsta sem ég man þá var staðan 8-6 fyrir okkur og 10 eða 11 gegn okkur þremur. Þeir jöfnuðu og Svenni fór í mark í staðin fyrir Jón þegar við vorum komnir í 9-8. Svenni taldi 16 í hinu liðinu og það voru örugglega 1-2 5 eða 6 ára!! Vá djöfull tæklaði ég einn þannig, hann flaug bara útaf vellinum og fótbrotnaði á báðum fótum. En við vorum 3 og hinir búnir að fjórfaldast frá upphaflega liðinu sínu. Ég var ógeðslega þreyttur eftir að hafa hlaupið völlinn fram og til baka mjög oft! En þetta dugði okkur ekki og þeir unnu 10-9!

Við fórum í Krónuna og það var sko keypt Coke! Trúðu mér! Ég léttist örugglega um 3 kg. og var örugglega búinn að svitna líter!!
Sexy? Ég veit!
En við fórum til mín og baktöluðum fólk og horfðum á Foo Fighters live at Hyde Park. Það var ýkt nice!

Í gærkveldi hitti ég Svenna og Sigurgeir, eftir að ég henti Svenna heim sótti ég Jón en hann var nýbúinn að vera á Blades og Glory.

Annars í morgun. Þá vaknaði ég með 26 ólesin skilaboð!!! Allt í einu var ég orðinn vinsæll!
En ég var ekkert orðinn vinsæll, þetta kom allt frá Jóni á meðan hann var að bera út Moggan í morgun kl 6:13-6:29. Hann sendi bara sms úr vasanum á meðan hann labbaði.
Svona er að gleyma að læsa lyklaborðinu á símanum!! Það getur maður tapað 200 kalli bara svona einn, tveir og þrír!


Annars  langaði mig bara að deila þessu með ykkur dúllurnar mínar!

AC Milan - Liverpool taka 2

03. maí 2007 klukkan 13:12
Í gær horfði ég á AC Milan - Manchester United í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Man. U. voru aldrei líklegir til neins. Kaká skoraði fyrsta mark leiksins og bakaði bara Manchester-kökur. Leikurinn endaði 3-0 og samanlaggt 5-3 því Manchester vann AC Milan 3-2 á Old Trafford (sínum heimavelli).

Þannig AC Milan eru komnir í úrslitaleikinn í Aþenu. Sem er forvitnilegt því AC Milan spiluðu í úrslitaleiknum árið 2005 og þá gegn Liverpool.
Sá leikur var svakalegur!! AC Milan ætluðu að baka leikinn og voru komnir í 3-0 í hálfleik. Liverpool tóku sig til í andlitinu og jöfnuðu á 10 mínútna kafla á seinni hálfleik og þurfti leikurinn að fara í framleggingu. Ekkert mark var skorað í framleggingu og vítaspyrnukeppni varð að veruleika.
Liverpool sigraði vítaspyrnukeppnina og spurningin hvort þeir endurtaki leikinn í ár?

Tuðrubolti

01. maí 2007 klukkan 22:43
Í mánaðarannálnum gleymdi ég að nefna dramaið í horninu og svo í gærkveldi spilaði Owen með Newcastle í fyrsta skiptið í 10 mánuði eða eitthvað!

Annars þá byrjar mánuðurinn vel maður!
Ég, Svenni, Jón, Pavol, Gunni Viðar og Gústi frændi Svenna fórum saman í fótbolta í Garðabæ. Ég og Jón vorum alltaf saman í liði og töpuðum öllum 4 leikjunum sem voru spilaðir!
Við kíktum á Sigurgeir og sníktum Coke fyrir pening. Svo lá leiðin að skutla fólkinu heim en tók þó Laugara með Svenna, Gunna og Pavol.
Svenni og Pavol fóru svo heim og ég og Gunni tékkuðum aðeins á bænum og fórum á Kaffibarinn, þar var fínt að setjast niður nema það var nokkuð furðulegt tónlist. Það var enginn inná Bar 11 og engin tónlist inná Celtic Cross sem var í fyrsta skipti og við settumst niður á Dillon líka en þar voru aðeins eldri gellur og gaurar með þeim sem eru þottþétt búnir að reykja og dópa mikið í gegnum árin! Frekar freaky náungar, þó svo sumir voru alveg alvöru; vorum með sítt og glæsilegt skegg.

Við töluðum allavega saman um að kíkja kannski í bæinn um helgina saman. Það gæti orðið skrautlegt en án efa gaman!

Liverpool unnu Chelsea í kvöld í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Fyrri leikurinn fór 1-0 fyrir Chelsea en í kvöld skoraði Agger eina mark leiksins á 22. min.(fyrir Liverpool). Liverpool áttu líka skalla í slánna í venjulegum leiktíma. Í framleggingu skoraði Kuyt fyrir Liverpool ógilt mark en það var ótrúlega tæpt hvort það átti að dæma rangstöðu eða ekki, en hún var dæmd.
Það þurfti að útkljá leikinn í vítaspyrnukeppni því Chelsea vann fyrri leikinn 1-0 og Liverpool í kvöld 1-0, þannig að það var jafnt 1-1.
Zenden tók fyrstu spyrnuna fyrir Liverpool og skoraði örugglega. Robben tók fyrstu spyrnu Chelsea og Reina varði spyrnuna. Xabi Alonso skoraði svo 2-0 fyrir Lverpool en Lampard skoraði líka 2-1. Þá átti Gerrard góða spyrnu líka en Reina kláraði næstum leikinn þegar hann varði frá Geremi. Kuyt tryggði Liverpool áfram í úrslitaleikinn þegar hann skoraði 4-1 í vítaspyrnukeppninni.

Á morgun er svo annar stórslagur milli Manchester United og AC Milan. Man. U. eru 3-2 yfir eftir fyrri leikinn sem var á Old Trafford og munu liðin spila á morgun á San Siro á Ítalíu. Milan dugir að vinna 1-0 og vinna þá á mörkum á útivelli en við sjáum til hvernig fer!!

Til hamingju Poolarar og takk fyrir að senda Chelsea í þunglyndi Woohoo!!

Gangi Þér Vel

01. maí 2007 klukkan 02:11

Já, prófin eru byrjuð og allt yndislegt og svona. Ég fór íslensku í morgun kl 11. Þegar ég labbaði út þá kallaði mamma á eftir okkur Huldu "Gangi ykkur vel". Sko "Nei takk" segi ég.

Hulda er ein af þeim fáu sem þekkja þessa hlið og "hrækti" á eftir mér þegar ég fór úr bílnum.

Orri sagði "Gangi ykkur vel" ég kallaði reiðilega á eftir honum "NEI!!" hann svaraði "OK, gangi þér illa" ég sagði að það virkaði ekki heldur þannig og sætti mig við brake a leg eða þá bara ekkert eða eitthvað.

Þegar ég fór í prófið stóð í lok frófsins "Gangi ykkur vel" en ekki gleðilegt sumar eða eitthvað skemmtilegra.

Ég kom svo eftir próf heim og kíkti á netið og getið hvað!! Hér beið eftir mér eitt "Gangi þér vel" og svo núna Magga, þú fylltir mælinn þannig ég varð að skrifa alla þessa færslu um hversu mikið í þoli ekki þessi orð, "Gangi þér vel".

Ég vil tuff tuff. Það er mitt "GÞV" ég vil ekki einusinni segja þessi orð. Ég segi ekki þessi orð því ég vil ekki heyra þau, þess vegna finnst mér skemmtilegra að segja "Skemmtu þér" eða "Hafðu gaman" og stundum segi ég "Brake a leg". Ég kýs X-S(Skeggi) Niður með Gangi þér vel. Nú segir fólk "Gangi þér vel með það." Þá segi ég ykkur bara að fokka ykkur.

Ég vil samt ekki að neinn skammist sín í dag fyrir að hafa sagt þetta því að ýta undir mína óánægju og að láta mig vilja ræða um þetta, þá vita þetta fleiri og vonandi sem flestir.

Þá vil ég bara enda þetta litla spjall á léttu nótunum og ég segi ykkur bara að fara í rassgat og hafið gaman!

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Dingaling

Prófíll

  • Nafn: Skeggi
  • Netfang: skeggi9@hotmail.com
  • Staður: Rvk
  • Atvinna: Háskólanemi hjá Háskóla Íslands
  • Hjúskaparstaða: Einstæður
  • Um mig: Enginn en óflippaður Skeggi
  • Annað: Ef það er ekki gaman, þá gerir maður það gaman

Leit

Leikir á netinu