Auglýsing

Skólinn í dag!

31. október 2007 klukkan 17:04
Í tilefni þess að snjórinn er farinn aftur.. sem ég er afar kátur með, þá gerði ég mér nokkuð skemmtilegan dag í skólanum!

Ég mætti í fyrsta tíma hja Óla í ÍSL403 og lærði um Bjarna Torarensen. Kl. 9:05 mætti ég í ENS503 hjá Kristen sem eru alltaf skemmtilegir tímar vegna flippaðans kennara en svo er Anna Herdís engin gervimanneskja, en hún situr fyrir hliðina á mér í ensku.
Eftir enskuna báðum við Danni (í videoráði í LOK) Kristen um að leika fyrir okkur í myndbandinu.. hvað svaraði hún? Ég má ekki segja mikið.... usss!!
Þá komu frímó sem voru frekar einmannalegar því enginn veitti mér mikla athygli.. sem er ekkert alslæmt, svo var gaur í skólanum sem söng fyrir þáttinn hans Bubba.. og Bubbi Morteins kom sjálfur í skólann til að fylgjast með honum syngja nokkrar línur í skólanum fyrir framan alla.
ÍSL633 - barnabókmenntir.. voða lítið til að segja frá þeim tíma en á milli ÍSL og ENS603 átti ég skemmtilegt tal við Binna og svo tíma annarinnar!
Arnaldur.. ég veit ekki hvað það er.. en er bara svona gaman að gera presentation með þér?

Ég, Arnaldur, Lára og Hjördís (sem eru líka í LOK með mér) gerðum hópverkefni saman um "satire" sl. 2 enskutíma! Kynntum það í lok tímans í dag.
Subjectið var: Sexual thought! Við byrjuðum á broti úr uppistandi með hinum eina sanna Bill Hicks. Sumir kannast við þessa klippu og vita að það er að sjálfsögðu fáranlega fyndið atriði.
Í kynningunni sögðum við að
það ætti að klóna menn eins og Gunnar í Krossinum og selja hann inn á öll heimili svo menn gætu heyrt hans æðislegu orð og pælanir á hverjum degi og svona og lausnin á vandamálinu var að það ætti að
hella tjöruog fjöðrum yfir fólk með kynferðislegar hugsanir eða einfaldlega brenna það!
Þetta var sko besti tími síðan L. Ron Hubbard!

Þá komu lööööngu frímínúturnar. En á miðvikudögum eru þær ekki 30 min eins og venjulega... heldur ""$#$//&/% 50 mín!! Hvað þarf maður að gera við 50 mínútna frímó??
Jæja.. það var ekki margt spennandi og frásegjanlegt þar.. en þá var gat hjá mér og ég hitti Sveinbjörgu íslenskukennara og umsjónarkennarann minn og ég þarf ekkert að tjá mig mikið um það...

En ég er að fýla þýskutímana í tætlur! Ég er búinn að vinna í hópverkefni um Der Untergang, lesa bók.. sem maður lifði nú alveg... og svo var ég að kynna ljóðaverkefnið mitt með Elvari, enda hópverkefni líka, eins og Der Untergang sem ég gerði líka með Elvari.
Við vorum með Ohne Dich með Rammstein.
Í raun vorum við löngu búnir með kynninguna, en við gerðum meira að segja Powerpoint show með þó það var ekki nauðsynlegt. En það var bara skemmtilegra!
Að sjálfsöfðu var videoið líka með laginu í kynnngunni.
Svo fljótlega á maður að gera verkefni um þekktan þýskann mann og ég veit nú um fleiri en einn þjóðverja sem ég væri sko alveg til í að kynna!

Þetta var pottþétt einn af betri dögum annarinnar.

Lada

30. október 2007 klukkan 01:02
Hvaða bíll er þetta???

Það veit ég ekki!!

Klósettseta

29. október 2007 klukkan 19:06
Ræktin er greinilega að gera sig!
Maður sér alveg stóran mun!

Ég mætti í leikfimi í morgun. Maður byrjaði að hita upp eins og alltaf áður! Ég tók eftir því að á meðan ég tók 5 ferðir tók ég 3 ferðir.. þannig ég skokkaði mun hraðar en aðrir. Svo fengum við fyrirmælin um hvað yrði gert í tímanum, en það var ekki fótbolti eins og maður vill alltaf gera!
Það var sippu- og armbeyjupróf!!
Það lýsir sér þannig að maður verður að taka armbeyjur og sippa í leiðinni. Það er frekar erfitt.. en það er hægt.
Hvað er þetta... þú fellur alltaf fyrir þessu!!!
Það var sippupróf og það var armbeyjupróf!
Til að ná 10 þurfti maður 90 sippur á 30 sec og 40 armbeyjur án þess að stoppa neitt.

Ég tel mig hafa staðið mig mjög vel í sippinu! Ég náði 77 sippum, en stelpan sem taldi hjá mér (og ég hjá henni) ætlaði að pakka sippinu saman, en flækti sig nokkrum sinnum og náði aðeins 60.
Armbeyjurnar voru piece of shit! 40 armbeyjur.. ég gat tekið örugglega minnst 15-20 í viðbót!

Ef það væri ekki fyrir ræktina væri ég ekki í svona góðu formi!

Takk Sigurgeir beibí að nenna að fara með mér í ræktina!! YEAH!

Helgarpunktar.

28. október 2007 klukkan 19:38
Helgin mín var þannig í hnotskurn:

Ég borðaði á Grillhúsinu með Nödda, Vöku, Jóni, Pavol, Binna, Möggu og Hröbbu.
Svenni joinaði seinna um kvöldið í video hjá Nödda.
Horfðum á Undead.
Pavol og Hrabba... ??
Bærinn var slakur.

Sá Newcastle tapa gegn Reading
Gráta
Pavol kom í heimsókn.
Og fór aftur.
Ég hitti Arnald og Andra.
Sáum Heartbreak Kid.
Hittum Óskar og... fyrrverandi kærustu hans.. man ekki hvað hún heitir. (vinir Arnalds)
Ákváðum að fara í pool.
Sótti Jón.
Fórum í pool.
Tapaði Jóni.
Vann Andra og Arnald.
Spilaði við gelluna.. Chemistry í gangi?
Vann hana 2x.
Tapaði Jóni aftur.

Hitti Svenna.
Smá sprak.
Hittum Sigurgeir.
Laugari.
Svenni heim.
Ræktin!
Tekið á.
Bolton 1-1 Aston Villa.
Liverpool 1-1 Arsenal.
Góður kvöldmatur!

Næturvaktin í kvöld.
Lesa.
Fara í rúmið
Góða nótt!

Könnun: Skeggi er..

26. október 2007 klukkan 15:32

Skeggi er..

Andfúll ( 0% / 0 atkvæði )
Skemmtilegur ( 11% / 1 atkvæði )
Leiðinlegur ( 0% / 0 atkvæði )
Skrítinn ( 0% / 0 atkvæði )
Óraunverulegur ( 22% / 2 atkvæði )
Brosandi ( 11% / 1 atkvæði )
Sætur ( 33% / 3 atkvæði )
Óhugnarlegur ( 0% / 0 atkvæði )
Subbulegur ( 0% / 0 atkvæði )
Sniðugur ( 22% / 2 atkvæði )

Well.. lýðræðið hefur talað!
Ég er víst ágætlega skemmtilegur og brosi smávegis.
Annars er ég frekar óraunverulegur og gífurlega sætur og þó nokkuð sniðugur líka!

Ég er samt greinilega ekkert andfúll, né leiðinlegur og alls ekkert skrýtinn. Enginn sagði heldur að ég væri subbulegur eða óhugnarlegur.

Verið svo dugleg að svara!
Þið sem svarið: Keep up the good work!
Annars aularnir sem svara aldrei farið að "#%$#%& gera það.. það voru 29 heimsóknir um daginn og svo fæ ég 9 svör á könnuninni og 2-3 comment þann dag!
Haldiði að ég fylgist ekki með?

Turtleskvöld!!

24. október 2007 klukkan 22:38
Vá!! Æskan er eitthvað sem fer ekki frá manni!

Turtles eru bestir!!

Ég var á nördakvöldi í FG!

Turtleskvöld! Fjórir þættir voru sýndir af gömlu góðu þáttunum sem voru á Stöð 2 í gamla daga! Ég get svo svarið að þetta voru einir af fjórum bestu þáttum sem ég hef séð í þónokkurn tíma. Kannski helst þá því ég var svo spenntur að sjá þættina! Enda laaangt síðan maður sá þessa gömlu þætti.
Ég man nú eftir nokkrum þáttum sem voru sýndir þegar maður var lítill, en mig rámaði ekki einusinni í neinn af þessum þáttum. Ég spyr þá bara hvort fyrsta sería af Tutles hafi verið sýnd á Íslandi.

En ég vildi bara deila því með ykkur að ég átti æðislegt kvöld með Sigurgeiri, Jóni og nördaklúbb FG!

Októberflipp

24. október 2007 klukkan 17:14
Útaf því að ég nenni ekki að skrifa neina ritgerð þá ætla ég að benda á sameiginlega færslu okkar Önnu.

http://kiza.bloggar.is/blogg/280683/

Ég bendi samt á að hún Anna gerði alla heimavinnuna og lagaði til samtali. En ég talaði við hana.
Þetta er óttalega fyndið og lesið þetta og enjoy!

Hef ekkert ađ segja

23. október 2007 klukkan 18:55
Það er búin að vera mörg afmæli upp á síðkastið: Arnaldur, Andri frændi, Jón, Svenni, Þórir frændi og Alex í dag. Á næstunni (næsta mánuðinn) munu Atli, Hilmar, Gunni V., Sigurgeir og Kalli eiga afmæli.

Í gær fór ég í skólann og var í nokkuð góðu stuði!! Ég bjó til stuð í kringum mig líka og það var í eitt fyrsta skiptið á önninni.
Það var ekki eina góða við daginn í gær, heldur spilaði Newcaste við Tottenham og sigraði 3-1. Ég var búinn að vera svolítið hræddur við Tottarana því ég held að það sé aðeins tímaspursmál hvenær þeir hrökkva í gang og byrja að vinna. (þeir eru í 18. sæti)
Eftir leikinn skrapp ég á Laugarásvideo. Ég er alveg á því að það er svo sannarlega lang besta videoleigan á landinu!
Finndu spólu sem þig langar að sjá, þess vegna eldgamla spólu, og þarna geturu örugglega pottþétt fundið gripinn og þér er sagt allt sem þú vilt vita um myndina.

Svona.. ég hafði ekkert að segja... alltaf hægt að finna eitthvað sem er ekkert merkilegt að vita.
Nema... Laugarásvideo er snilld.

Tröllakynlíf

21. október 2007 klukkan 20:09
Ég er búinn að skrifa færslu hjá Pavol.

http://pavol5.bloggar.is/blogg/273540/#ath

Commentið hjá honum og hvetjið hann til að blogga!
Að hafa ekkert til að skrifa um er engin afsökun.

Annars ætla ég að koma með nánara hvað gerðist um helgina. Ekki of nákvæmt samt.


Tilbúin/n??

OK.. hér byrja ég.

Ehhemmm... sorry.. aðeins að ræskja mig..

hmm..jásko

Ég og Svenni og Pavol skruppum til Andra á Grettisgötu á föstudaginn. Þar voru Binni, Magga, Nöddi, Vaka og vinkonur hennar.

Það var flippað það með fullorðinsgleraugu..... þú veist.. gleraugu sem eiga að sýna ca. hvernig maður er þegar maður er orðinn fullur.
Það var mjög skrýtið... en gaman.

Hvað var svo gert? Jú við skruppum á Hverfisbarinn kl 11:30 og hittum þar Ásu, kærustu Svenna og nokkrir vinir hennar voru þar líka.
Það fóru eitthverjir vinir hennar fljótlega eftir að við komum... það var örugglega vond lykt af mér.. annars var einn gaur eftir sem var alveg ágætis náungi.
Bara eitt við hann sem var ekki alveg sniðugt.. ok hann var hommi.. sem var ekkert mál.. en ég get svarið að hann var að reyna soldið við mig. M.a. að hann kom 3x
til mín og sagði "Hæ Jesú" svo fannst mér hann oft vera að fylgjast með mér.
En það gott að vita að maður hafi möguleikana.. þó svo maður hafi ekki áhugann.

Hann fór svo á hommabar og Ása líka en við hin fórum aftur upp á Grettisgötu til Andra.
Eftir því sem leið á kvöldið fékk ég hausverk sem var ýkt stuð eða þannig og ég varð frekar daufur.

Daginn eftir.. þ.e. í gær fór ég, Pavol og Svenni (aftur) upp í sumarbústað milli Hveragerðis og Selfossar. Við fórum að halda upp á afmæli Jóns með honum og vinum hans.
Einzi átti afmæli 15. og Jón 18. okt þannig þeir héldu þetta saman og það voru um 20 manns.
Það var geggjað stuð þarna! Þarna voru menn á borð við Kalla, Einza og Geira.

Svo voru 3 stelpur sem voru þarna.. algjör gella sem var á föstu og leiðinleg, gilitrutt/lukkutröllið (sem sagt ekki súpermódel) og gella sem var á lausu.
Allar stelpurnar voru með vesen. Jón, næst þegar þú átt 20. ára afmæli.. slepptu þá bara gellunum.
Gilitrutt stundaði kynlíf.. það leiddi til þess að sá óheppni sat inni í bíl restina af kvöldinu, gellan sem var á lausu lét Svenna ekki í friði og flotta tussan var með kjaft undir lokin á kvöldinu.

Dinner.. ég klára þetta eftir smá!

Ok kominn.. Já.. annars var geggjað gaman í bústaðnum!.... þar til allt dó út.

Svo í dag tékkaði ég á geisladiskasölunni í Perlunni. Ég keypti mér þrjá CD's. Echoes Silence Patience & Grace með Foo Fighters, Harvest Moon með Neil Young og 9 með Damien Rice.
Ég er mjög sáttur.. svo er ég að pæla að skreppa fljótlega aftur og fá mér Cure disk.. en ég á aðeins einn disk með Cure.

Svo hitti ég Eddu (úr FÁ) þið sem þekkið/munið eftir henni. Hún var mjög kát og var að kaupa fullt af DVD! YEAH!!... Ég er farinn að horfa á Næturvaktina!

Könnun: Gleraugnaglámur eđa ekki?

18. október 2007 klukkan 18:18

Gleraugnaglámur eða ekki?

Gleraugnaglámur ( 43% / 3 atkvæði )
Two eyes ( 14% / 1 atkvæði )
Sólgleraugu ( 0% / 0 atkvæði )
Bæði sól og venjuleg ( 29% / 2 atkvæði )
Ég er ekki mennskur ( 14% / 1 atkvæði )

Okay.. það er önnur ný færsla hér að neðan.
7 manns nenntu að svara þessari könnun á þessum 10 dögum sem hún var í gangi.

Annars mjög jafnt, 3 af okkur... 4 með mér og 3 two eyes, og eitthverjir þeirra notar sólgleraugu líka!
Einn sem er ekki mennskur sem er gott.. ég sé að gæludýrin ykkar kíkja stundum líka!

Nú megiði svara hvernig ykkur finnst ég vera.

Annars langar mig refresha könnuninni oftar. Þá er hægt að vera oftar með grínkannanir og eitthverjar góðar inn á milli!
Verið dugleg að svara! Vei!

Jónsdagur

18. október 2007 klukkan 17:55
Jæja Jón.

Það er bara kolruglað rok núna!

Ég fór úr strætó og heim og það var eins og ég hafi farið í bað í fötunum.

Annars var snilld að Pavol heimsótti okkur í skólann í dag og Anna lét sjá sig! Meira að segja í horninu!!
Ótrúlegt en satt!

Svo er Vetrarbikarinn á morgun!

Þá er bara málið að æfa alla mikilvæga vöðva fyrir morgundaginn!! Þá meina ég ALLA vöðvana.. ætlar eitthver a hjálpa mér?

Jæja.. ég er farinn að snyrta hárin í kringum kónginn!
Á meðan þið bíðið eftir næstu færstu getið þið leikið ykkur í Exratyjjóleiknum.
http://www.leikjanet.is/?gluggi=leikir_spila&leikur=1123

Jónsstćlakvöldmáltíđ

17. október 2007 klukkan 23:41
Hæbb.

Það styttist í að táningurinn okkar hann Jón komist í fullorðinna manna tölu.

Já, hann er að verða 20 ára stór!

Eftir miðnætti set ég upp mynd dagsins.... bara handa honum!

Eftir WC ferðina okkar Sigurgeirs fórum við á Stælinn með Jóni, Pavol og Kalla.... sem var ekki alveg það sem ég hafði planað í kvöld.. en ég ætlaði að vinna í þýskuritgerð.

Síðasta táningakvöldmáltíð Jóns varð að veruleika.
Ekki nóg með það, heldur hittist allur Evrópuhópurinn í heildina í fyrsta skiptið!! Ég býst ekki við neinu öðru en þetta mun smella saman og verða ótrúlega gaman. Enda var þessi dagur og þetta kvöld algjör snilld!
Það komust nokkrir Jónsbrandarar og sögur sem maður hafi heyrt áður og ekki heyrt.

Jæja, Jón! Ég þakka fyrir frábæran tíma með þér á þínum táningaárum og við höldum uppi góðum vinskap á þrítugsaldrinum líka! Ef ekki.. þá máttu bara eiga þig!

Lćrdómur

16. október 2007 klukkan 17:05
Þungur dómur... þegar maður er dæmdur til að læra.

Jæja.. ég er bara að læra, vildi deila því með ykkur.

Ógeđisdrykkur

16. október 2007 klukkan 00:10
Hey, ég er búinn að gera nokkrar örsmáar breytingar, þið sem komið reglulega og skoðið actually síðuna stundum ættuð hugsanlega að fatta hverju ég breytti.. amk 1-2 hlutum.

Annars.. þá langaði mig að hafa þetta stutt og segja ykkur frá ógeðisdrykkum sem ég fékk um helgina sem Andri (vinur Nödda).
Coca-Cola Light, blandað saman við Mentos, Extra tyggjó, hlaup og fullt af nammi. Allt nammið var leyst upp í Coke-inu, en tyggjóið flaut efst í Coke-inu.

Ímyndaðu þér sykurinn..
Ég komst allavega að því að ef maður fær OF mikið af því góða er það hrikalega vont!!

Leg

12. október 2007 klukkan 18:05
Ég var ekkert að ljúga að ég væri að fara í leikhús í síðustu færslu.

Rub it in, Jón og Sigurgeir! Ég var smá seinn, en við misstum ekki af neinu atriði.. nema þegar Hugleikur var sól og eitthvað.. en það tengdist leikriti ekkert neitt þannig séð.

En eins og ég bjóst við þá var leikritið mjöög steikt. Ég fattaði ekki samhengið í fyrstu atriðunum, þó ég fattaði atriðin einn og sér, en það tengdist allt þegar leið aðeins á leikritið. Söngatriðin voru mörg og textinn var frábær í þeim, þó maður heyrði ekki alltaf alveg allt sem var sagt í söngnum.

Leikritið fjallar um stelpu sem er ólétt og fjölskyldu hennar, bróðir hennar smitaðist af fuglaflesu, pabbi hennar á við mjög sick vandamál að stríða og mamman er bara gömul gelgja. Allavega þá er leikritið virkilega steikt eins og ég sagði og það er virkilega fyndið.

Ég heyrði samt alveg í hlénu að sumir voru ekki sáttir, sem er alveg skiljanlegt því þetta er ekkert alveg húmor fyrir alla.
Hugleikur var mjög duglegur að gera grín að nokkrum týpum fólks í samfélaginu.

Ég mæli eindregið með leikritinu! Farið og skemmtið ykkur!


Djamm í kvöld!

Menningarmađur?

11. október 2007 klukkan 17:52
Ég og Elvar vorum sagðir menningarlegir í gær þegar við vorum að fara á klassíska gítartónleika með Manuel Barrueco í Salnum, Kópavogi.

Við fórum að borða á American Style, Kópavogi áður en tónleikarnir byrjuðu.
Tónleikarnir byrjuðu kl 20:00. Þegar maður var sestur og ljósin slokknuðu lét hann bíða aðeins aftur sér. Maður þóttist næstum halda að hann ætlaði að beila á tónleikunum, en hann kom þegar ljósin hefu verið slökkt í um 2. min. held ég.
Kallinn tók 2 lög fyrir hlé. Þau voru mjög löng, enda spilaði hann í um 40 min. fyrir hlé. Ég hafði auðvitað ekki heyrt lögin í heild sinni áður, en þau voru mjög róleg og undir lokin í fyrri hálfleik var ég orðinn frekar þungur.

Í hlénu var hægt að kaupa sér gos og súkkulaði á þá 400 kall....... ekki ódýrt!! En það er ekki á hverjum degi sem maður sér Sprite í gleri!

Eftir hléð var aðeins fjörugra fannst mér, en eins og í fyrri hlutanum, þá tók hann aðeins 2 lög. Fyrra lagið fyrir hlé var að mínu mati besta lagið. Það var góð stemning í laginu og ég bara fýlaði það í tætlur við fyrstu hlustun.

Ég var mjög sáttur með tónleikana.. en ég hef ekki mikinn samanburð við aðra klassíska tónleika því þetta voru fyrstu tónleikar sem ég fer á af þessarri tegund tónlistar!

Svo er bara málið að fara á Leg eftir Hugleik Dagsson í kvöld með Sigurgieri og Jóni!
Jebb.. leikhús er málið! Örugglega í fyrsta sinn sem ég fer í leikhús án þess að fara með skóla síðan ég var 7 ára eða eitthvað!

Ég hlakka til! Svo er líka vetrarfrí og maður þarf líka að læra í því og svona! Þetta er fjör.

P.S. Ég ætla að breyta flokknum "Kvikmyndir" í "Gagnrýni" og ég reyni að gagnrýna atburði sem ég fer á.. en ekki bara bíómyndir. Ekki það að ég er búinn að vera eins duglegur við það eins og ég ætlaði mér.

Könnun: Videoin á síđunni

09. október 2007 klukkan 16:23

Videoin á síðunni


Horfi ( 0% / 0 atkvæði )
Horfi ekki
( 67% / 2 atkvæði )
Skoða þegar ég hef ekkert annað að gera ( 33% / 1 atkvæði )

Það er gott að vita að þið nennið að taka kannanirnar.
Þessi var búin að vera uppi í 14 daga.

Andradjamm

07. október 2007 klukkan 22:52
Takmarki hefur verið náð: 10.000 flettingar á síðunni!


Jæjajá.... sko... ég hef ekki stoppað alla helgina.
Ég hef ekki sest niður að slakað á.

Ég kom heim úr skólanum á föstudaginn með Elvari, við horfðum á Der Untergang (Downfall) fyrir þýsku hópverkefni. Áður en við kláruðum myndina þufti maður að hætta því maður var búinn að plana bíó með Pavol og Andra nokkur áður. Við ætluðum að fara á Superbad.
Ég. Elvar og Pavol fórum á KFC og Elvar fór svo heim.
Svenni var búinn að spjalla við mann og fékk okkur til að hætta við bíóferðina.
Svenni sannfærði okkur að koma með sér til Akranes í partý hjá Jensa, vinar síns.
Við komum þangað, Pavol keyrði, ég, Svenni og Andri flutum með.
Það var þvílkíkt stuð í partýinu. Allir fengu sér eitthvað áfengi nema við Pavol held ég.
Þarna voru Nöddi, Vaka, Binni, Magga, Bidda, Hrabba, Jensi, Tóta, Brynjar og einn annar gaur sem ég man ekki hvað heitir.
Fólk varð fullt, en ég þegar það er mikið stuð þá verð ég kátur og geri eitthvað flippað. Eitthver setti pappír af Miller bjórkippu á hausinn á mér og ég notaði það m.a. sem hatt og grímu. Sumir sem voru fullir furðuðu sig á því að ég væri ekki undir áhrifum áfengis.
Sumir hefðu getað orðið heppnir með Jakobínu, eins og hún kallaði sig, en samkvæmt mínum heimildum átti Pavol meiri möguleika en aðrir.

Við fórum í bæinn (Rvk.) um miðnætti. Pavol fór heim, ég fékk bíl lánaðan og þá var farið að flippa í bænum! Ég, Svenni, Andri og Brynjar fórum í bæinn.
Við reyndum að fara inn á nokkra staði! Andri komst ekki inn á neinum stað... annars man ég lítið eftir bænum... nennir eitthver að rifja það upp með mér?

Ég fór á fætur á laugardaginn fyrir hádegi, ég fór með móður minni að kaupa dót fyrir afmælispartýið hennar sem varð um kvöldið heima.
Hitti Gunna eitthvað rétt fyrir hádegi og við skruppum saman að horfa á Man. Utd. - Wigan. Staðan var 0-0 í hálfleik, en leikurinn endaði 4-0 fyrir Manchester.
Ég fór svo með honum niður í Skífu, Laugavegi og keypti mér miða á hjá miða.is á leik Ísland - Lettland sem er næsta laugardag.

Ég var mættur niður á Malbikunarstöð kl 18:30. Það var grillveisla. Hitti Heimi, Óla, Sigga litla og Sigga Samúel, kynntist Andra (skóflustrák) og hitti fullt af öðrum. Það var snilld að koma að hitta fólkið og spjalla og hafa gaman.

Ég skrapp heim og skutlaðist með ömmu og afa og þau voru svolítið drukkin en það var bara gaman að því!!
Fór aftur heim og talaði við ömmu Sessu og fleiri ættingja, enda var húsið fullt af þeim.

Ég fór þá út aftur. Ég hitti Andra (FÁ) og við skruppum á klúbbinn, Gullinbrú. Þar voru Heimir, Siggarnir, Hrafnhildur, Andri, Hjörtur og fleiri úr bikinu og Böddi. Við tókum pool og svona áður en við fórum í bæinn.
Andri komst ekki inn neinsstaðar!
Á röltinu hitti ég Andra (frænda), hann var últra hress með Fríðu, kærustu sinni og fleirum. Svo hitti ég gelluna sem er með mér í íþróttum, shit hvað hún var flott, en ég laggði ekki alveg í að fara að spjalla við hana þegar hún var þarna með tveimur gaurum.
Siggi Samúel, Andri (bik) og Heimir voru með okkur í bænum en þeir tveir fyrrnefndu beiluðu á okkur því Andri (FÁ) komst aldrei inn og þeir fóru á Prikið.
Ég var orðinn nokkuð spenntur að hitta Nödda og félaga, en ég var búinn að heyra í þeim fyrr um kvöldið og langaði að hitta fólkið.
Heimir var viss um að koma Andra eitthversstaðar inn, en það virkaði aldrei, allsstaðar var hann spurður um skilliríki. Loks gafst Heimir upp um 3 leitið og went crazy og fór að drekka bjór.
Þá fórum við Andri að hitta Vöku, Binna og Möggu sem voru komin í bæinn. Eftir eitthvað vesen og bið, þá fórum við Andri, Vaka og Magga og fengum okkur pizzu og svo heim til Nödda. Binni varð eftir með vini sínum.


Hjá Erni var Andri (vinur Nödda).
Það var flippað lang fram á morgun. Magga vildi fara heim, en maður var lengi að koma sér út.
Eftir virkilegt flipp... sem var tekið upp á video og kemur ekki fram hér fóru allir frá Nödda, ég, Magga og Andrarnir.

Ég skutlaði Andra (vinar Nödda) fyrst heim. Þá sótti ég Binna niður í bæ, sem var bara í leiðinni. Binni var að tala við eitthvern gaur. Þegar ég kom þá sagði Binni við mig: Ég er að tala við þennan gaur og ég þekki hann ekki neitt, en hann er tilbúinn að borga 5000 kall fyrir að láta skutla sér heim.
OK, ég er ekki mjög mikið fyrir að taka fólk inn í bílinn sem ég þekki ekki. En.. ég meina 5000 kall.
Ég tók hann þá uppí og henti honum heim og öllum hinum og kom frekar út í plús eftir kvöldið bara útaf þessu skulti.

Ég var kominn heim kl 7. Heldur seint!
En Svenni hringdi í mig og vakti mig kl 13:30 og ég hitti hann.
Ekki mikið að segja frá, enda ertu örugglega orðin/n þreytt/ur að lesa!
En samt tókum við bolta með Gunna Viðari og ég fékk mestu neglu í hnéð sem ég hef bara fengið og ég gat ekki haldið áfram í smá tíma! Það var hræðinlegt! Ég fékk marblett sem fór fljótlega.. mjög furðulegt!

Hey, ég nenni ekki að eyðileggja daginn fyrir ykkur, en þeir sem nenntu að lesa allt eiga skilið medalíu!

Sjáumst!

Styttist í jólin?

04. október 2007 klukkan 00:19
Maður er farinn að heyra um jólahugsanir.. nei ekki bara frá þér Vaka.
Svo fer maður að rekast á jólaauglýsingar í sjónvarpinu.

Hvað er fokkin málið?? Það er október for crying out loud!
What's the point? Það vita allir að 95% Íslendinga munu vera á síðustu þremur dögum í Kringlunni, Smáralind og Laugaveginum á sama tíma og finna síðustu gjafirnar!!

Ég held að ég hafi ekki oftar en einusinni klárað að kaupa pakkana fyrir Þorláksmessu. Það skapar líka sérstaka jólastemningu að klára þetta á síðustu stundu (eða Icelandic style).
Hvað eru margir sem eru byrjaðir að hugsa til jólanna? Ég byrja í fyrsta lagi á fyrsta í aðventu! Þá eru laufabrauðin gerð hjá okkur.
Ég byrja samt ekkert að pæla í jólunum fyrr en eftir próf.. eða eftir einkunnaafhendinguna.

Mér finnst að það ætti að banna jólaauglýsingar fyrir 1. des. Ég hata virkilega mikið að horfa á sjónvarpið í september og sjá jólaaulýsingu, þó ég varð ekki mikið var við þær í september í ár, en þó eitthvað.
Eftir fyrstu jólaauglýsinguna koma hinar auglýsingarnar streymandi og fjölga smátt og smátt þar til það verður allt morandi í desember, sem er allt í lagi þá.

Ástæðan fyrir að ég hata þessar jólaauglýsingar á "miðju" ári er sú að ég er bara kominn með gjörsamlegt ógeð af jólunum þegar loksins kemur að þeim og jólastemningin löngu farin og frekar hötuð ef eitthvað er!
Hvað ef það væru jól á hverjum degi? Þá fengi maður strax leið á þessu öllu! Sérstaklega jólalögunum.

Ég hef jú nokkrum sinnum farið í IKEA og fundið miða þar sem maður getur komið með sínar skoðanir um verslunina. Það hef ég sagt að ég er ánægður með verslunina og starfsmennina og svona, en svo í lokin hef ég alltaf skrifa eitthvað álíka: "Jólin eru í desember!!"

Á vissum tíma, er ekki hægt að fara í Kringluna eða Smáralind. Þegar allt er skreytt! Það er frekar leiðinlegt! Það gengur ekkert að hafa búðir skreyttar í 2-3 mánuði því fólk sækist frekar eftir þeim... gerir fólk það? Ég forðast helst skreytta staði frá september til desember.

Ekki misskilja, ég elska jólin, ég myndi ekki skipta á þeim og neinu öðru. Gamlárskvöld er samt í uppáhaldi!

Kv. Skeggi Jólaköttur

Stemningin í horninu

03. október 2007 klukkan 18:25
Hvað er málið?
Mér finnst voða lítið gaman að mæta lengur í skólann.
Fullt að gera, en það er ekki málið.
Það er stemningin!! Hvert fór hún eiginlega?
Ég segi bara og skammast mín ekkert fyrir það segja að í sumar kveið ég fyrir að mæta í skólann því að það hættu svo margir! Pavol, Orri og fleiri.
Stemningin fór líklegast með þeim. Ég skemmti mér ekkert í skólanum lengur. Ég á bara spjall við Arnald, Elvar og fólkið. Það gerist ekkert nema Pavol eða Andri koma í heimsókn.

Það sem hefur gerst á önninni er að Hannsi og Arnaldur eru komnir með kellingar, Arnaldur og aðrir metalhausar settu fótboltalið í Vetrabikarinn... hmm meira?

Það sem á að gera í horninu er að sýna gleði og vera í stuði, ég svona reyni... það sést samt voða lítið því það er auðveldast að sitja í horninu með þunglyndissvip.. þó ég sé með bros kannski þá þýðir það ekkert að ég sé í fullu stuði.

T.d. í dag, Arnaldur!!
Það var eitthvað techno leiðindi sem hljómaði í matarhléinu. Útaf eitthveri ástæðu, sem ég man ekki langur hver er, þá tosaði ég í Arnald og ætlaði að fá hann til að dansa með mér. Hann vildi frekar að vera að fist-fokka kellingunni sinni eða eitthvað, þannig ég settist niður freeekar pirraður því það er enginn metnaður í að koma flippinu í gang aftur þarna í skólanum.

Ég segi næstum: Ég vildi að Maggi og Dagur hefðu komið aftur! Þó það var vesen í kringum þá, þá var fjör í kringum þá svona framan af... þá var gaman!
Við elstu munum eftir því, það var fjör þá. Síðastliðið ár hefur verið skemmtilegt en þessi önn er búin að vera hörmung!

Kannski maður sleppi bara að mæta í hornið og dýfi hausnum bara ofan í klósettin í skólanum í frímó. Eða geri eitthvað nytsamlegt!

Þeir sem ég sakna sem eru farnir og búnir að klára: Svenni, Sigurgeir, Pavol, Auður, Fríða, Orri, Grétar Geir, Robbi, Andri, Edda, Nöddi, Örvar, hinn Elvar.. ég er örugglega að gleyma eitthverjum.. en það er ekki hægt að gera neitt í því núna.

Upp með stemninguna! Ég nenni ekki að hanga í skólanum og minnast glataðrar síðustu annarinnar í FÁ, ég vil ekki að síðasta önnin verði ömurlegasta önnin, því það hefur alltaf verið eitthvað til að hlakka til þegar maður hefur komið í skólann! Alltaf stemningin að mínu mati!

Óvissuferđ

03. október 2007 klukkan 00:28
Jæja, mamma fór með okkur í óvissuferð, eins ogkom fram í færslunni hér á undan!

Maður fékk ekkert að vita. Ég vissi ekkert hvort ég átti að gera mig til að ganga upp á Esju eða fara í skyrglímu!
Eitthvað sagði mér að við færum bara út að borða.
Ég fékk samt ekkert að vita fyrr en ég var fyrir utan Ítalíu og við borðuðum þar.
Þetta var sko í 5-6 skipti sem ég borða þarna, það klikkar aldrei.
Ég fékk mér eitthvað ódýrt og lét nægja að fá mér Nautamedalíur.. ég fékk þær ekki um hálsinn.
Atli fékk sér pasta, Hulda nautakjöt, Sólrún og Sigurgísli voru líka og fengu sér sitt hvora pizzuna, pabbi var með lúðu og mamma eitthvað fínt sem ég man ekki.
Hulda var með hár í kjötinu sínu og fékk nýtt.
Ég var mjög sáttur með mitt, en átti nóg pláss þegar ég var búinn með minn mat. Ég fékk eina sneið hjá Sólrúnu og kláraði botninn af pastainu hans Atla. Hulda átti svo nokkra bita eftir og vildi ekki meira þegar ég reif kjötið í mig og skildi ekkert eftir.
Þá kom að eftirrétt, ég var nú ekkert sérstaklega að bíða eftir honum, en maður fékk þannig líka.
Ég pantaði mér að sjálfsögðu ís bara. Mamma fékk afmælisköku að hætti hússins.
Ég kvarta ekki yfir ísnum. Nema í annarri kúlunni var fullt af rúsínum!! Hver setur rúsínur í ís???
Fyrir utan rúsínurnar var ísinn mjög góður.

Rúsínur eiga heima í skúkkulaðinu og í grjónagrautnum og svona.

Ég fór sæll og kátur og saddur frá Ítalíu og sit hér og rita um það.
Ítalía rokkar.

Gott kvöld með fjölskyldunni.

Mútta 45

02. október 2007 klukkan 16:22
Í dag á hún móðir mín afmæli.
Hún er fædd 1962, og það vita allir að þeir sem eru fæddir 1962 fá afslátt í ár og verða þrítugir aftur!

Í kvöld ætlar hún með okkur í óvissuferð. Maður fær ekkert að vita!
Ef eitthver les um að um 5 manns fóru niður í Kötlu eða Heklu og þið heyrið ekki frá mér í eitthverja daga... þá vitiði hvað er í gangi!

Ég er farinn að snyrta pube-in mín

September

01. október 2007 klukkan 18:37
Nú er kominn nýr mánuður... man eitthver hvað var í gangi hjá mér í mánuðinum sem var að líða?
Ekki ég, rifjum þetta upp.

Ég fór í rútustrætó, yfir 100 tóku þátt í einni könnuninni minni, þar var svindlað, ég sá Chris Cornell, kvartaði yfir að fólk commentaði aldrei, það virkaði, fólk er farið að vera mun duglegra, örugglega því ég hótaði að hætta með síðuna, ég sagði fátt fyrstu 10 dagana því það var ekkert í gangi, þó ritaði ég nánast á hverjum degi og stundum 2x!
Og fólk afsakar sig að hafa ekkert að segja á blogginu sínu!!
Ég las bókina Educating Rita! Það er afrek!! Ég sá Ísland - Norður-Írland, þar sem við Atli og Elvar sáum landa okkar sigra 2-1. Mamma sagðist heimsækja síðuna og hrósaði mér fyrir að vera góður penni, ég fór í afmæli Kittyjar sem var mikið fjör og ég lærði að dansa við techno. Ég byrjaði að skoða myspace rúmlega daglega, ég keypti mér klósettkort með Sigurgeiri og við reynum að fara í World Class reglulega! Arnaldur komst á séns, Martyna er heit fyrir slánalingnum okkar, they're so cute. Skeggi varð 3 ára! Ég fór með LOK til Akureyrar, skoðaði tvo háskóla, Háskólann Bifröst og Háskólann á Akureyri, það var djammað á Akureyri og kynnst fólki, ég borðaði hamborgara með bernese-sósu, hafði 16 stelpur inní herberginu mínu, fór í bæinn, fann 915 kr. á djamminu, ég mætti einn í íþróttir þegar Hafdís íþróttakennari var veik, ég fékk tag í bakið, kvartaði mikið yfir að
Echoes, Silence, Patience & Grace væri ekki kominn í Skífuna og vildi hætta mínum viðskiptum þar og færa þau yfir til Amazon, ég skráði mig í Vetrarbikarinn, Arnaldur, Ingó, Hannsi og fleiri stofnuðu djöfladýrkendalið í keppnina. Ég fór í bæinn með Jóni og Kalla eftir að Pavol beilaði, hittum Svenna í bænum og Kitty og Eyrúnu smá líka, fór heim og spjallaði við Atla til 7, vakti í 40 tíma með 4 tíma svefnpásu, missti röddina.
Svo í gærkveldi, þetta stendur ekki í færslu: Í gærkveldi fékk ég einn mesta hausverk sem ég hef fengið í mörg ár.

Vá þetta var meira en mig grunaði.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Dingaling

Prófíll

  • Nafn: Skeggi
  • Netfang: skeggi9@hotmail.com
  • Stađur: Rvk
  • Atvinna: Háskólanemi hjá Háskóla Íslands
  • Hjúskaparstađa: Einstćđur
  • Um mig: Enginn en óflippađur Skeggi
  • Annađ: Ef ţađ er ekki gaman, ţá gerir mađur ţađ gaman

Leit

Leikir á netinu