Könnun: skeggi.bloggar.is er
14. júlí 2009 klukkan 23:59
Alltaf leiðinlegt (1/7) 14%
Hlakka alltaf til að lesa meira (2/7) 29%
Er í smá dvala núna (1/7) 14%
Sinnepsósa (3/7) 43%Einn er alveg kominn með leið og afhverju ætti maður að tékka inn ef maður er kominn með leið á síðunni?
Þá eru tveir sem sleppa ekki refresh takkanum á síðunni og bíða aðeins of spenntir við tölvuna... engin furða að síðan sé stundum hægvirk.
43% borða venjulega við lesturinn og halda ekki sósunni uppí Hlöllanum og sulla öllu yfir sig.
Djammbik
13. júlí 2009 klukkan 23:34
Eitthvað þarf maður að bjarga andlitinu hérna!
Síðasta mánuðinn hefur maður basicly unnið og partýast. Það var partý hjá Andra fyrir þónokkru, framlag Trausta í partýinu var snilld, það hefði ekki verið eins án hans. Þó kom saman fullt af góðu fólki og allir skemmtu sér vel.
Á sama tíma voru Pavol, Jón, Sigurgeir og fleiri á Graspop í góðu stuði. Maður hefur heyrt að maður missti af miklu í ferðinni. En þá hugsa ég bara næsta ár! Þá er planið að fara þessa ferð og eiga það gott og þú kemur bara með í 10 daga ferðalag eða eitthvað og í dúndrandi stemmara!!... en vonum samt að það verði fleiri snilldar bönd eins og voru 2008 þegar ég var.
Þá var tekið á því hjá Arnaldi um daginn, en ekkert frásagnarlegt að frétta þaðan.. nema að gestgjafanum varð frekar óglatt og eyddi dágóðum tíma með salernisskálinni, en einhverjir sáu um kappann á meðan. Ég og Trausti fórum í bæinn saman, við hittum fullt af fólki en stuðið byrjaði samt ekki almennilega fyrr en Trausti fór og ég tók djammið með Reyni inná Apótekinu, en það var í fyrsta sinn sem ég hafði komið þangað.
Ég fór svo á ættarmót um helgina. Við vorum í Hvalfirði, eitthvað var nú drukkið.. ég var nú ekki búinn að fá mér mikið þegar ég fór að finna svolítið á mér, en hafði lítið borðað.
Svengdin hélt áfram alla helgina, ég borðaði pulsu kl 14 daginn eftir og fór í bæinn vegna afmælisins hans Reynis. Ég byrjaði að drekka áður en ég fór af stað og var orðinn vel ölvaður um 10 leitið þegar ég skrapp á Pizzuna með Atla og Gústa, en svo fórum við aftur til Reynis.
Afmælisbarnið hvarf þegar við fórum í bæinn og enginn hitti hann í bænum svo mikið sem ég veit, en ég hitti flesta aðra. Stemningin byrjaði ekki fyrr en um kl: 4 þegar ég fór á Glaumbar með Gulla og við dönsuðum soldið, en þegar maður tók eftir að það væru eiginlega bara gaurar í kringum okkur ætluðum við að kíkja á Apótekið, en áður en við komumst inn voru Heiðar og Steingerður komin á Glaumbar og við hittum þau þar.
Það var frekar skemmtilegt að rekast á Binna og Möggu þegar við vorum á leiðinni í leigubíl og við deildum taxanum með þeim í Seljahverfið.
Annars í bikinu erum við búnir að malbika 5600 tonn á Hellisheiðinni, þannig þið getið vonandi notið ykkar aðeins betur á leiðinni til Hveragerðis eða Selfossar eða á leiðinni í bæinn. Ég lærði á Hellisheiðinni að þar er mosinn mjög þæginlegur og það er mjög gott að liggja í honum. Það má vel sofa þarna... bara passa að það rigni ekki mikið.
Við malbikuðum í kringum skolphreinsistöð í Hafnarfirði... það var nú ekki ljúffeng lykt inní því húsi.
Við erum búnir að vera nokkuð duglegir í Seljahverfinu, tókum Hólmaselið um daginn... það var ekki fallegt, en það var gert eins vel og hægt var eftir víst smá mistök hjá vélamanni, en það er þó þokkalegt að keyra þar.
Svo höfum við farið nokkrum sinnum á Borgarnes. Þar er Herbert "The Pervert" sá kall er kominn vel á aldur og mætir alltaf með myndavélina og tekur myndir af okkur.
Í dag bikuðum við Sæbraut frá Olís, framhjá Laugarásbíó og að Shell svo fórum við á Akranes og tókum eitthvað leiðinda verkefni, en góða veðrið hélt manni góðum og þó maður kvartaði undan verkinu og rykinu sem var þarna, þá gat þetta verið verra.
Ég nenni ekki að setja inn myndir núna.. Þið verðið bara að googla myndir sjálf og skoða.. ég læt þetta nægja ljúflingarnir mínir, takk fyrir að tékka reglulega þó maður sé slakur í þessu núna.